Indriði Ingi Stefánsson varaþingmaður Pírata var á svæðinu, ásamt Andrési Inga Jónssyni, Gísla Rafni Ólafssyni og Lenyu Rún Taha Karim þingmönnum Pírata, þegar piparúðanum var beint á mótmælendur.
„Við vorum þarna að taka þátt og styðja þessi eðlilegu og lýðræðislegu mótmæli,“ segir Indriði í samtali við fréttastofu. Hann segir lögreglu hafa beitt úðanum án viðvörunar og beint honum að mótmælendum.
Hann segir úðanum ekki hafa verið beint að þingmönnum Pírata en hluti af piparúðaskýinu hafi borist til þeirra áður en þau áttu möguleika á að víkja.

En meidduð þið ykkur?
„Þetta sveið smá í augun en vorum annars bara góð,“ segir Indriði.
Úðinn rifinn fljótt upp
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, var einnig á mótmælunum. Hann segir viðbragð lögreglu hafa komið sér á óvart.
„Það kom mér á óvart að lögreglan virtist ekki vera að reyna að róa aðstæður. Að ýta við fólki til að opna fyrir bílastæðin, heldur var piparúðinn rifinn fljótt upp,“ segir Andrés Ingi.
Hann segir að sér hafi ekki staðið nein ógn af hópnum sem mótmælti. Hann hafi verið hávær, en lítill. „Og það telst varla brýnast í heimi að losa bílakjallarann meðan megnið af þingheimi er ennþá inni í þinghúsi í eftirpartýi eftir eldhúsdag.“

„Þau eru ekki búin að vera friðsamleg,“ segir Kristján Helgi Þráinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn um mótmælin við Alþingishúsið í kvöld. Hann segir mótmælendur hafa kveikt á blysum og hent þeim og reyk að Alþingishúsinu. Auk þess hafi þau sett matarlit á hurð Alþingis.
Hann segir einn lögreglumann hafa beitt piparúða og að hann hafi líklega farið yfir nokkra aðila. „Við vorum með aukamenn til staðar út af mótmælunum og svo kölluðum við til bíla sem eru í umferð eins og við þurftum til að leysa verkefnið.“
