Vísir tók saman fjölda fjallkvenna sem fluttu ávarp á 17. júní í ár frá hinum ýmsu sveitarfélögum og bæjum landsins. Stuðst var við vefsíður sveitarfélaga og samfélagsmiðlafærslur.
Sem fyrr virðast svörtu og bláu kyrtlarnir vinsælustu þjóðbúningarnir meðal fjallkvennanna, en auk þeirra mátti sjá skautbúninga og hvítan kyrtil. Þá eru margar hverjar með krullur í hári.
Reykjavík
Ebba Katrín Finnsdóttir var fjallkonan í Reykjavík í ár. Hún klæddist hinum víðfræga skautbúningi sem er í vörslu Árbæjarsafns og Ríkisútvarpið fjallaði ítarlega um í heimildamyndinni Fjallkonan að kvöldi þjóðhátíðardagsins.

Ebba flutti ávarp eftir Berg Ebba Benediktsson. Í því fjallar hún um ættjarðarástina sem leynist í hinu hversdagslega.
Hafnarfjörður
Fjallkonan í Hafnarfirði í ár var Björk Níelsdóttir tónlistarkona. Hún flutti ávarp á Thorsplani, en Hafnarfjarðarbær stóð fyrir metnaðarfullri dagskrá í tilefni dagsins sem hófst klukkan átta um morguninn og lauk klukkan tíu um kvöldið.
Björk skartaði bláum kyrtli í tilefni dagsins.

Kópavogur
Lilja Sigurðardóttir rithöfundur og fráfarandi bæjarlistamaður Kópavogs var fjallkona bæjarins í ár. Hún flutti ljóðið Þulu frá Týli eftir Jóhannes úr Kötlum.
Hún var í glæsilegum skautbúningi frá Þjóðdansafélagi Íslands.

Akureyri
Á þjóðhátíðahöldunum í Lystigarðinum á Akureyri var Diljá María Jóhannsdóttir nýstúdent frá Menntaskólanum á Akureyri fjallkona. Hefðin á Akureyri er örlítið frábrugðin því sem viðgengst víða annars staðar að því leyti að fjallkonan flytur ávarp frá eigin brjósti.

Útskriftarathöfn MA fór venju samkvæmt fram á þjóðhátíðardaginn sjálfan og voru Akureyringarnir sérlega heppnir með veður að þessu sinni.
Garðabær og Bessastaðahreppur
Sigrún Ósk Ólafsdóttir úr kvenfélagi Álftaness var fjallkonan á áttatíu ára lýðveldisafmælinu í Garðabæ og Bessastaðahreppi.
Hún klæddist skautbúningi í eigu kvenfélags Álftaness og flutti ljóð eftir Þórarinn Eldjárn á hátíðardagskrá á Garðatorgi.

Mosfellsbær
Í Mosfellsbæ fékk Ástrós Hind Rúnarsdóttir þann heiður að vera fjallkonan. Ástrós útskrifaðist sem bókmenntafræðingur frá Háskóla Íslands á laugardaginn og ákvað í tilefni dagsins að flytja ljóð eftir Ólöfu frá Hlöðum, sem var einmitt umfjöllunarefni lokaverkefnis hennar í bókmenntafræðinni.
Ástrós klæddist bláum kyrtli.

Þingvellir
Leikkonan Edda Björg Eyjólfsdóttir var fjallkonan á hátíðarhöldunum á Þingvöllum. Þegar lýðveldið Ísland var sett þann 17. júní 1944 stóð til að Kristjana Milla Thorsteinsson, sem hafði verið valin fjallkona, flytti ljóð við athöfnina. En hún fékk aldrei að stíga á svið. Edda flutti ljóð Guðmundar Böðvarssonar, sama ljóð og Kristjönu hafði verið falið að flytja.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var við hátíðahöldin á þingvöllum. Hann leiddi sögugöngu um svæðið og hlýddi á söng af ýmsu tagi.
„Í sögugöngunni tókum við lagið og fjöldi kóra sömuleiðis, auk annars tónlistarfólks. Þá nefni ég sérstaklega fallega stund í Almannagjá þegar fjallkonan flutti ávarp eins og til stóð fyrir hartnær 80 árum en fórst þá fyrir. Við erum alltaf að reyna að gera betur, við Íslendingar,“ segir Guðni á Facebook.
Selfoss
Ásrún Aldís Hreinsdóttir Selfyssingur og Gettu betur kempa var fjallkonan á Selfossi í ár. Hún flutti ljóðið Fjallganga eftir Tómas Guðmundsson á hátíðarhöldunum.
Skautbúningurinn er í eigu kvenfélags Selfoss.

Suðurnesjabær
Fjallkona Suðurnesjabæjar var Hafdís Birta Hallvarðsdóttir. Hún las upp ljóðið 17. júní 1948 eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur rithöfund. Ljóðið var einmitt flutt í Sandgerði þann sama dag fyrir 76 árum og má finna í ljóðabókinni Hugsað heim, sem kom úr árið 1962.

Vestmannaeyjar
Fjallkonan í Vestmannaeyjum var Barbora Gorová. Barbora flutti hátíðarljóð í tilefni dagsins. Hún var klædd í fallegan bláan kyrtil.

Þorlákshöfn
Fjallkonan í Þorlákshöfn að þessu sinni Var Þ. Auður Ævarr Sveinsdóttir. Kvenfélagskonur í Þorlákshöfn áttu umsjón með búningnum og saumaði móðir hennar kyrtilinn sem hún klæddist.

Akranes

Fjallkona Akraneskaupstaðar í ár er Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir ferðamálafræðingur og lögreglukona. Helga las ljóðið 1974, þjóðhátíðarljóð, eftir langafa sinn Guðmund Böðvarsson á hátíðarhöldunum.
Á vef Akranesbæjar má nálgast stutt æviágrip um Helgu. Hún flutti 13 ára á Akranes og hóf nám í Brekkubæjarskóla. Hún stundaði fótbolta í yngri flokkum ÍA og endaði ferilinn í meistaraflokki félagsins. Helga Ingibjörg er menntaður ferðamálafræðingur og lögreglumaður og hefur hún unnið hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár.
Einnig er óhætt að titla Helgu sem söngkonu en hún tók þátt í undankeppni júróvision árið 2020 með lagið Klukkan tifar. Þá sigraði hún Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2006.
Snæfellsbær
Patrycja Rekeltiene var fjallkona Snæfellsbæjar árið 2024. Hér heldur hún á nýútgefnu bókinni Fjallkonan: „Þú ert móðir vor kær“.

Ísafjarðarbær
Glampandi sólskin var á hátíðahöldum á Eyrartúni á Ísafirði í tilefni 17. júní. Jóhanna Eva Gunnarsdóttir var fjallkonan í ár þar á bæ og flutti ljóð eftir Ísfirðinginn Tómas Emil Guðmundsson Hansen.

Egilsstaðir
Elva Rún Klausen heitir fjallkonan á Egilsstöðum í ár. Á þjóðhátíðardaginn viðraði einstaklega vel. Hún flutti ræðu í óbundnu máli.

Hvolsvöllur
Fjallkonan á Hvolsvelli þetta árið var hún Jódís Assa Antonsdóttir.

Hveragerði
Fjallkona Hveragerðis var að þessu sinni Ásta Björg Ásgeirsdóttir kirkjuvörður og fánaberar hennar voru þær Sigríður Jóhannesdóttir Danner skátaforingi og Sjöfn Ingvarsdóttir flokksforingi og dóttir Ástu.

Laugarvatn
Sara Rosida Guðmundsdóttir nýstúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni var fjallkonan fyrir Laugarvatn og Laugardalinn í Bláskógabyggð.

Borgarnes
Fjallkonan í Borgarnesi var hún Edda María Jónsdóttir nýstúdent frá Menntaskólanum í Borgarfirði.

Hornafjörður
Fjallkona Hornfirðinga þetta árið var hún Arna Lind Kristinsdóttir, nemi við Verslunarskóla Íslands. Hún flutti ljóðið aldamót eftir Hákon Aðalsteinsson.

Þekkir þú fjallkonu sem hefur enn ekki ratað í myndaveisluna? Allar ábendingar á Ritstjorn@visir.is eru vel þegnar.
Hella
Fjallkonan í Hellu þetta árið var Rakel Ýr Sigurðardóttir.

Fjallabyggð
Í Fjallabyggð var Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst fjallkona þetta árið.

Vopnafjörður
Fjallkonan á Vopnafirði var Þórhildur Inga Hreiðarsdóttir. Hún útskrifaðist úr 10. bekk Vopnafjarðarskóla núna í vor.

Seltjarnarnes
Hrefna Kristmannsdóttir, jarðeðlisfræðingur og prófessor emertia og flutti hún ljóðið Hver á sér fegra föðurland eftir Huldu. Val fjallkonunnar að þessu sinni tengdist 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins en Hrefna er fædd þann 20. maí 1944 og varð því einmitt 80 ára í ár. Þegar að Hrefna fæddist var Ísland enn undir stjórn danakonungs en þegar að hún var skírð var Ísland orðin fullvalda þjóð eftir stofnun lýðveldisins þann 17. júní 1944. Sem fjallkona okkar Seltirninga kom Hrefna fram í upphlut sem hún saumaði sjálf en maðurinn hennar Axel Björnsson heitinn sá um baldýra á milli borðaskrautsins á búningnum. Við upphlutinn bar Hrefna fallegt skraut frá ömmu sinni.

Hrefna valdi að flytja ljóðið, Hver á sér fegra föðurland, eftir Huldu (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind). Ljóðið samdi Hulda sérstaklega árið 1944 í tilefni af stofnun íslenska lýðveldisins en hún sendi það inn í ljóðasamkeppni sem hún sigraði ásamt ljóði Jóhannesar úr Kötlum, Land míns föður. Hrefna var glæsileg fjallkona Seltjarnarness 2024 og flutti fallega hið táknræna ljóð Huldu sem á ekki síður við í dag en fyrir 80 árum. Takk Hrefna Kristmannsdóttir