„Samninganefnd Eflingar er ánægð og stolt af góðum árangri í viðræðum okkar við Reykjavíkurborg. Við settum okkur markmið vegna mikilvægra úrbótamála og við náðum árangri í þeim velflestum. Félagsfólk Eflingar sem að starfar hjá Reykjavíkurborg er ómissandi starfsfólk. Það er ánægjulegt að sjá og upplifa að Reykjavíkurborg skilur að hlusta þarf á kröfur okkar og mætir okkur með samningsvilja í kjarasamningsviðræðum“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í tilkynningu frá félaginu.
Þar kemur einnig fram að kjarasamningurinn við borgina innihaldi sambærilegar launahækkanir og kjarasamningar Eflingar á almenna markaðnum, sem undirritaðir voru í mars síðastliðnum. Þá segir að mjög góður árangur hafi náðst í fjölgun undirbúningstíma hjá deildarstjórum sem starfa á leikskólum borgarinnar og að einnig hafi náðst góður árangur í að bæta og skýra grein sem fjallar um undirbúningstíma annarra starfsmanna leikskólanna.

Samningaviðræður Eflingar við Reykjavíkurborg hófust um miðjan apríl og var vísað til sáttasemjara við lok maímánaðar. Kjarasamningur Eflingar við borgina rann út 31. mars síðastliðinn.
Í tilkynningu segir að hafist verði handa við að kynna nýjan kjarasamning á allra næstu dögum og atkvæðagreiðsla um samningana hefjist innan skamms. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar eiga að liggja fyrir ekki síðar en 10. júlí.
Frekari upplýsingar um efni samningsins og atkvæðagreiðslu verða birtar á efling.is fljótlega.