Belgar á toppinn í jöfnum E-riðli Siggeir Ævarsson skrifar 22. júní 2024 18:31 Kevin De Bruyne fagnar marki sínu sem innsiglaði sigurinn vísir/Getty Belgía var með bakið upp við vegg eftir slæmt tap í fyrsta leik en liðið vann góðan 2-0 sigur á Rúmeníu í kvöld og er komið á topp E-riðils.
Belgía var með bakið upp við vegg eftir slæmt tap í fyrsta leik en liðið vann góðan 2-0 sigur á Rúmeníu í kvöld og er komið á topp E-riðils. Belgar höfðu töluverða yfirburði í leiknum í kvöld og fengu fjölmörg færi til að gera út um hann. Þeir fengu sannkallaða draumabyrjun þegar Youri Tielemans skoraði á 2. mínútu eftir góðan undirbúning frá Romelu Lukaku. Lukaku kom Belgíu svo í 2-0 á 64. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Við nánari skoðun var stóra táin á Lukaku fyrir innan og markið fékk því ekki að standa en þetta var þriðja markið sem dæmt er af Lukaku á mótinu. Þetta atvik kom þó ekki að sök þar sem Kevin De Bruyne innsiglaði sigur Belgíu á 79. mínútu. Belgar gerðu fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik og skiptu um leikkerfi og það bar árangur. Belgíu er nú í efsta sæti E-riðils en öll liðin eru með þrjú stig eftir tvo leiki. Í lokaumferð riðilsins mætast annars vegar Belgía og Úkraína og hins vegar Slóvakía og Rúmenía en lokaumferðin fer fram á miðvikudaginn, 26. júní.
EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Lét dóttur sína hlaupa þrátt fyrir að hún ætti erfitt með að anda Sport Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Formúla 1 „Verður gott að fá meiri frítíma en mun sakna strákanna“ Körfubolti Þóra og Ægir best en engin verðlaun í Skagafjörð Körfubolti Frumraun Gylfa í beinni í kvöld Íslenski boltinn Þau bestu verðlaunuð á lokahófi KKÍ Körfubolti Tók tapsáran Willum töluverðan tíma að jafna sig Sport Var ósátt en er nú mætt aftur í landsliðið Handbolti Ólympíufari lést í eldsvoða Sport Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markasúpa í Mjólkurbikarnum Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Breiðablik Lengjubikarmeistari eftir öruggan sigur á Þór/KA Segja Barcelona hafa svindlað og kærðu Arnór fyrsta nafn á eftirsóknarverðum lista Frumraun Gylfa í beinni í kvöld Spyrja sig hvort Freyr geti heillað eins og Slot í Liverpool „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Harry Redknapp kallaði Tuchel þýskan njósnara Slegin út með tíu mörkum í tveimur leikjum Fögnuðu grimmt og gætu fengið bann Helgi Kolviðs aftur í þjálfun Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Brassar vilja fá Ancelotti til bjargar Eiginkonan varð að færa Marquinhos miklar sorgarfréttir Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt Gömul ummæli Bartons dregin fram: „Menn sem berja konur eru skíthælar“ „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari Til skoðunar að tilkynna málið til lögreglu Chelsea og Man City gætu þénað sextán milljarða á HM félagsliða Glæsimark Russo fullkomnaði endurkomu Arsenal Lyon örugglega áfram á kostnað Bayern Glódís Perla aftur á bekknum Umboðsmaður Davies gagnrýnir landsliðsþjálfarann Reiði í Danmörku: Sagður skvapaður og eins og barn með lömunarveiki „Mjög krefjandi tímabil framundan“ Sjá meira