Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Karen Ýr taki við stjórnun og rekstri gæðadeildar og beri ábyrgð á gæðaeftirliti framleiðslu Ölgerðarinnar, auk annarra gæða- og öryggismála þvert á allar deildir fyrirtækisins og dótturfélaga. Karen, sem sitji í gæðaráði Ölgerðarinnar, sé formaður HACCP ráðs og sjái um utanumhald gæðakerfis, auk innri og ytri úttekta.
Karen sé menntaður matvælafræðingur frá Háskóla Íslands og hafi starfað hjá Ölgerðinni frá árinu 2016. Hún hafi hafið störf sem sumarstarfsmaður á rannsóknarstofu Ölgerðarinnar og hafi síðan þá sinnt flestum sérfræðistörfum innan gæðadeildar fyrirtækisins og verkefnastýrt meðal annars innleiðingu á núverandi gæðakerfi þess.