Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Storytel 11. júlí 2024 12:00 Hjá hlustendum Storytel má sjá aukningu í vinsældum ljúflestrarbóka á þessum árstíma. Áhugavert er að sjá hvernig viðburðir og árstíðir breyta hegðun okkar og neysluvenjum í bókalestri. Þegar sólin hækkar og daginn fer að lengja virðist fólk fara að lesa sögur sem létta sálina og greinilegt er að sumarið kveikir í ástarglóðum en hjá hlustendum Storytel má sjá aukningu í vinsældum ljúflestrarbóka á þessum árstíma.
Til dæmis má nefna Litlu nærfatarútuna sem er fyrsta bók í nýrri rómantískri ljúflestrarseríu eftir sænska höfundinn Karin Janson í lestri Anítu Briem og Bústaðinn við ströndina sem er nýjasta bókin eftir Sarah Morgan í lestri Sólveigar Guðmundsdóttur. Þá kom nýlega út fjórða bókin í seríunni Sagan af Hertu eftir sænska höfundinn Önnu Sundbeck Klav, en serían hefur notið mikilla vinsælda alls staðar á Norðurlöndunum, enda skrifuð sérstaklega fyrir hljóðbókarformið. Svo hefur heyrst að bókaklúbbar landsins séu að hámlesa seríuna um systurnar sjö eftir Lucindu Riley en þær fá mikla hlustun í lestri Margrétar Örnólfsdóttur. Glæpasögur og skáldsögur halda þó alltaf velli. Þar eru nýútkomnar sem hljóðbækur nokkrar eldri klassískar sem hlustendur hafa tekið fagnandi eins og bækur Arnaldar Indriðasonar Röddin,Grafarþögn og Synir duftsins og bækur Birgittu H. Halldórsdóttur Gættu þín Helga, Dætur regnbogans og Óþekkta konan. Bækur Birgittu hafa lengi verið ófáanlegar á prenti en eru nú komnar sem hljóð- og rafbækur á Storytel og hafa notið gríðarlegra vinsælda. Svo verður spennandi að fylgjast með rithöfundinum Hugrúnu Björnsdóttur sem kemur ný og fersk inn á bókamarkaðinn með sinni fyrstu bók Rót alls ills sem skaust strax í fyrsta sæti á lista yfir vinsælustu hljóðbækur landsins. Þetta er rómantísk spennusaga um glæpi, ástir og leyndarmál, er skrifuð sem hljóðbók og í frábærum lestri Láru Jóhönnu Jónsdóttur. Forsetakosningarnar í vor höfðu líka áhrif á lestur með augum og eyrum því bækur tengdar íslenskum forsetum og forsetaframbjóðendum tóku kipp. Þar má nefna Reykjavík eftir Katrínu Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson, Útlaginn eftir Jón Gnarr og bókin Hugrekki til að hafa áhrif eftir Höllu Tómasdóttur er enn á toplistum, enda þjóðin spennt að kynnast sínum nýja forseta betur. Lestur bóka og umtal í samfélaginu getur líka tengst og má þar nefna að bókaperluna Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, í lestri Stefáns Jónssonar. Hún kom ný inn á topplista í hlustun í sumar og er greinilega umtöluð vegna bíómyndar sem er byggð á bókinni. Eins varð aukning í hlustun á Sönn íslensk Sakamál eftir Sigurstein Másson þegar frumsýndir voru sjónvarpsþættir um íslensk sakamál. Sumarið er rétt að byrja og útgefendur setja nýjar bækur inn á Storytel í hverri viku. Það verður því fróðlegt að sjá hvort þessi rómantíska bylgja haldi áfram að vaxa eða hvort krimmarnir taki yfir nú þegar nýjustu bækurnar eftir glæpadrottningarnar Yrsu Sigurðardóttur og Evu Björgu Ægisdóttur hafa komið út sem hljóðbækur.
Bókmenntir Menning Mest lesið Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Gagnrýni Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Bíó og sjónvarp Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Lífið Draumurinn rættist að syngja með Bubba Tónlist Laufey ein af konum ársins hjá Time Lífið Opnar fyrsta kynlífsklúbbinn á Íslandi Lífið Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Lífið María og Ingileif gjörbreyttu 150 fermetra parhúsi í Vesturbænum fyrir fimm milljónir Lífið Bryan Adams seldi upp á hálftíma Lífið Uppselt á Noruh Jones á nokkrum mínútum Lífið Fleiri fréttir Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Hátindar Öræfajökuls að vori Áttatíu ára sögu Múmínálfanna fagnað með nýrri línu Nýtt serum gegn hrukkum vegna sykurs Geðveikt fjör á Bessastöðum „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Gerum betur og setjum heilsuna í forgang „Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“ Sannkölluð rokkveisla hjá SIGN í Gamla bíói Aldrei of mikið af G-vítamíni Bóndadagsleikur á Vísi - taktu þátt Allir viðburðir á Íslandi á einum stað á Vísi Góð tilfinning að endurheimta styrkinn Læra og njóta í endurmenntunarferðum KVAN Einstakur bíll sem erfitt gæti verið að toppa Hugræn endurforritun er toppurinn á tindinum Landsliðsmaðurinn Bjarki Már mælir með Nutrilenk Gold Sjá meira