Ingrid Andress var fengin til að syngja þjóðsönginn fyrir stjörnuleik bandarísku hafnaboltadeildarinnar í Texas-ríki í gær. Söngkonan, sem hefur fengið fjórar Grammy-verðlauna tilnefningar, fór sínar eigin leiðir er hún flutti þjóðsönginn og hitti ekki alveg á allar nóturnar.
Flutningurinn vakti talsverða athygli á samfélagsmiðlum og hefur mikið grín verið gert að honum. Þar var því til að mynda velt upp hvort Ingrid hefði unnið í happdrætti til að fá að syngja þjóðsönginn. „Það blæðir úr eyrunum mínum. Einn versti flutningur allra tíma á þjóðsöngnum,“ segir einn netverji á samfélagsmiðlinum X.
Þá sagði annar að þessi vika væri erfið fyrir eyru í Bandaríkjunum. Vísar hann þar til þess að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, var skotinn í eyrað um helgina.
Það voru þó ekki bara netverjar sem furðuðu sig á flutningnum. Í útsendingunni mátti nefnilega sjá hafnaboltamanninn Alec Bohm þar sem hann virðist vera að halda í sér hlátrinum í beinni útsendingu á meðan Ingrid er að syngja.
Alec Bohm was all of us pic.twitter.com/wgns547T8x
— Philly Sports Sufferer (@mccrystal_alex) July 16, 2024
Þá hefur þessu verið líkt við annan slæman flutning á þjóðsöngnum, þegar söngkonan Fergie söng hann fyrir stjörnuleik NBA árið 2018.