Í gær voru sex einkaþotur staddar á Egilsstaðaflugvelli, þar af fjórar í eigu Ratcliffe. Austurfrétt greinir frá því að þotur á vegum Ineos hafi flogið víða að frá Evrópu og til Egilsstaða. Fram og til baka. Í gærmorgun hafi ein flogið frá Manchester í Bretlandi, önnur frá Nice í Frakklandi og enn önnur frá Brac í Króatíu, samkvæmt upplýsingum af FlightRadar.
Ratcliffe hefur sjálfur verið hér á landi undanfarna daga og sendi enska landsliðinu í knattspyrnu kveðju á samfélagsmiðlum fyrir úrslitaleikinn á EM sem fór fram á sunnudag. Allar líkur eru á því að kveðjan hafi verið send úr veiðihúsi í Vopnafirði.

Sjá einnig: Sir Jim Ratcliffe sendi enska landsliðinu kveðju frá Íslandi
Ratcliffe hefur um nokkurt skeið ásælst jarðir í Vopnafirði og Norðausturlandi ásamt viðskiptafélögum sínum. Þær eru flestar í umsjón Six Rivers Iceland, félags sem hann stendur að baki og hefur það að markmiði að vernda villta laxinn í Norður-Atlantshafi. Ratcliffe virðist ekki jafn umhugað um loftslagið, enda kolefnisfótspor einnar ferðar í einkaþotu allt að fjórtan sinnum meira en ferð með farþegaþotu.
Auðkýfingurinn sagði í samtali við fréttastofu árið 2021 að hann væri hættur að kaupa land á Íslandi. Þá átti Ratcliffe hlut í landi sem voru ríflega hundrað þúsund hektarar, eða um eitt prósent af öllu landsvæði Íslands. Nýjar reglur sem settu útlendingum skorður á jarðakaup urðu til þess að Ratcliffe kvaðst ekki vilja fá Íslendinga á móti sér. Á síðasta ári keypti hann 25 prósenta hlut í knattspyrnuliðinu Manchester United.


