Lífið á Vísi ræðir við stúlkurnar sem keppast um titilinn Ungfrú Ísland í ár og fær að kynnast þeim aðeins betur. Ungfrú Ísland verður í beinni útsendingu 14. ágúst á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Fullt nafn?
Harpa Rós Jónsdóttir.
Aldur?
24 ára.
Starf?
Leikskólaliði.
Hvað var það sem vakti áhuga þinn á keppninni?
Ég hef lengi fylgst með þessari keppni og alltaf dýrkað hvað keppnin stendur fyrir. Innrætið og það að vera góð manneskja og fyrirmynd, og að finna sjálfstraustið.
Hvað ert þú búin að læra í ferlinu?
Hingað til hef ég mestmegnis kynnst sjálfri mér betur en einnig hef ég lært meira um hvaða veikleika ég hef og hvað ég þarf helst að vinna í hjá sjálfri mér, sem hefur þá aðallega verið félagskvíðinn, og hefur þetta ferli virkilega hjálpað mér að byrja að tækla það allt betur.
Hvaða tungumál talarðu?
Íslensku og ensku.
Hvað hefur mótað þig mest?
Ég gekk í gegnum virkilega erfiða tíma með andlegu heilsuna mína allt frá barnsaldri og inn í tvítugsaldurinn. Ég er á ótrúlega góðum stað núna og hef verið síðustu sirka tvö ár, en það að hafa gengið í gegnum þetta hefur klárlega verið það sem mótaði mig mest og tel ég mig hafa komið út úr því sem betri, skilningsríkari og samúðarfyllri manneskju.
Erfiðasta lífsreynslan hingað til?
Það var líklegast þegar andlega heilsan mín var sem verst. Fyrir utan veikindin sjálf, innlagnirnar og heimsóknir á geðdeild, sálfræði-og læknatímana, er erfiðast að líta til baka og vita hvað veikindin hafði áhrif á þá sem eru mér næst.
Að horfa upp á foreldra mína reyna allt til að bjarga mér, þegar ég sá engan tilgang í að halda áfram og vildi enga hjálp útaf hræðslunni um skoðanir annarra. Þetta er eitthvað sem situr enn í mér í dag.
Ég vona innilega að foreldrar mínir viti hversu óendanlega þakklát ég er þeim og að þau eigi mjög stóran part í að ég sé hér enn í dag.
Hverju ertu stoltust af?
Hver ég er orðin í dag og það að ég held alltaf áfram að læra, þroskast og gera betur.
Besta heilræði sem þú hefur fengið?
Mamma hefur alltaf sagt við okkur systkinin, komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig, sem er virkilega algengt heilræði en samt svo ótrúlega satt því þú veist aldrei hvað aðrir eru að ganga í gegnum. Einnig hefur pabbi alltaf minnt okkur á að -vera bara þú sjálf/sjálfur.
Hver er uppáhalds maturinn þinn?
Hafragrautur! Akkúrat núna elska ég að setja smá dökkt súkkulaði, frosin hindber og skyr eða grískt út í hann.
Hver er fyrirmynd þín í lífinu?
Ég er ótrúlega heppin hvað ég á mikið af frábæru fólki í kringum mig, allir með sína eigin góðu eiginleika sem ég hef tekið mér til fyrirmyndar.
Annars talar mamma oft um hvað ég leit alltaf mikið upp til Elle Woods úr Legally blonde og stend ég enn við það. Mér finnst líka Pamela Anderson eins og hún er í dag, hvernig hún velur að lifa lífinu núna og það sem hún stendur fyrir er svo flott.
Hver er frægasta persóna sem þú hefur hitt?
Það fer held ég algjörlega eftir því hvaða bransa er verið að tala um þar sem ég hef alveg rekist á furðulega mikið af frægum einstaklingum. En kannski sem að flestir gætu kannast við væri Shaun White, hann er með heimsmetið af flestum Ólympískum gullverðlaunum frá snjóbrettara og er í sambandi með Ninu Dobrev úr Vampire diaries. Hann er virkilega almennilegur og skemmtilegur að spjalla við.
Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í?
Gott ráð sem ég hef lært með tímanum er: Ekkert er vandræðilegt nema þú gerir það vandræðilegt.
Ég reyni svolítið að lifa eftir því, annars myndi ég líklegast liggja andvaka öll kvöld.
Hver er þinn helsti ótti?
Að eitthvað komi fyrir þá sem ég elska.
Hvar sérðu þig í framtíðinni?
Einhvers staðar þar sem er hlýtt, helst allan ársins hring, með hús með landi eða kannski við vatn. Helst komin með nokkrar gráður og góðan feril þar sem ég get haft góð áhrif á heiminn.
Hvaða lag tekur þú í karókí?
Heaven is a place on earth með Belindu Carlisle hefur verið vel æft í singstar.
Þín mesta gæfa í lífinu?
Fjölskyldan mín og að hafa fæðst og alist upp á Íslandi.
Uppskrift að drauma degi?
Hlýtt og gott veður er liggur við allt sem ég bið um. Helst að vera heima í sveitinni eða allavega með fjölskyldunni minni.
Hér er hægt að kjósa í Ungfrú Ísland.