Bardagi gærdagsins var reyndar stuttur því eftir aðeins 46 sekúndur bað andstæðingur Khelifs, Angela Carini frá Ítalíu, um að hann yrði stöðvaður. Hún sagðist aldrei hafa verið slegin jafn fast og af Khelif og sagðist hafa látið stöðva bardagann til hún myndi ekki slasast illa.
Í kjölfar þessa stutta bardaga sköpuðust heitar umræður um þátttöku Khelifs í kvennaflokki. Hún fékk ekki að keppa á HM, sem Alþjóðahnefaleikasambandið (IBA) skipuleggur, í fyrra þar sem hún stóðst ekki kynjapróf.
IBA kemur hins vegar ekkert lengur að skipulagningu hnefaleikakeppninnar á Ólympíuleikum og Alþjóðaólympíunefndin (IOC) leyfði Khelif að keppa í París.
Sama um sannleikann
Og hún er nú komin í átta manna úrslit á Ólympíuleikunum og mætir þar Önnu Luca Hámori frá Ungverjalandi. Hún tjáði sig aðeins um bardagann sem framundan er við BBC.
„Það er ekki til í mínu hugarfari að gefast upp. Það skiptir ekki máli hvað gerist. Þetta var hennar ákvörðun,“ sagði Hámori og vísaði til beiðni Carinis um að bardaginn gegn Khelif yrði stöðvaður.
„Ég lofa því að berjast allt til enda. Við sjáum hvað gerist. Ég veit ekki hver sannleikurinn er. Mér er sama. Ég vil bara vinna.“

Hámori hefur unnið tvo bardaga á Ólympíuleikunum; gegn Grainne Walsh í 32 manna úrslitum og Marissu Williamson í sextán manna úrslitum. Bardagi Hámoris og Khelifs fer fram á laugardaginn.
Khelif er á sínum öðrum Ólympíuleikum. Í Tókýó fyrir þremur árum keppti hún í léttvigt en ekki veltivigt eins og nú. Khelif tapaði fyrir Kellie Harrington í átta manna úrslitum.