Mjög róleg byrjun en stórsigur hjá stelpunum hans Þóris Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2024 18:30 Henny Reistad fagnar hér í stórsigri norska liðsins í dag. Getty/Luke Hales Norska kvennalandsliðið í handbolta vann í kvöld sinn fjórða sigur í röð á Ólympíuleikunum í París.
Norska liðið vann þá tólf marka sigur á Þýskalandi, 30-18, í lokaleik riðlakeppninnar í dag en þær norsku voru komnar áfram í átta liða úrslitin fyrir leikinn. Stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar töpuðu óvænt á móti Svíum í fyrsta leik en hafa svarað því inn á gólfinu í öllum leikjum sínum síðan. Liðið vann níu marka sigur á Danmörku (27-18), sex marka sigur á Suður Kóreu (26-20), sjö marka sigur á Slóveníu (29-22) og svo þennan tólf marka sigur í kvöld. Henny Reistad var markahæst hjá Noregi með átta mörk og Stine Bredal Oftedal skoraði fjögur mörk. Norsku stelpurnar skoruðu ekki á fyrstu sex mínútum leiksins og lentu 3-0 undir í upphafi. Það bjargaði miklu fyrir Noreg að Katrine Lunde varði tvö vítaskot á fyrstu átta mínútum leiksins. Þýska liðið hefði getað náð enn meiri forystu á upphafsmínútunum. Norska liðið fór síðan í gang og skoraði sjö mörk í röð sem skilaði þeim 7-3 forystu og þýska liðið þurfti að taka leikhlé. Noregur var síðan sex mörkum yfir í hálfleik, 14-8, og keyrði síðan yfir þær þýsku í seinni hálfleiknum.
Handbolti Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil Körfubolti „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir dullað sér úr“ Körfubolti Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Fótbolti Ætlaði að ná hundraðasta sigrinum en endaði upp á spítala Sport „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ Handbolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Dagskráin í dag: Jólamánuðurinn hefst á allskonar Sport Dagur Dan komst ekki í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Sjá meira