Aldrei áður í sögu Ólympíuleikanna hefur það gerst að ein og sama þjóðin vinni öll gullverðlaunin í dýfingum. Flest gullverðlaunin í ár unnu Kínverjar með miklum yfirburðum eins og í tilfelli Quan Hongchan sem fékk fullkomnar einkunnir fyrir sínar dýfingar.
🇨🇳Quan Hongchan just secured another gold medal, China’s 22nd🥇, at women's 10m platform diving!
— Li Zexin (@XH_Lee23) August 6, 2024
💯Her score: 10 10 10 10 10 10 10
No wonder "Water Splash Disappearance Technique" was invented for her! 🌊 https://t.co/dxYqAujGWX pic.twitter.com/Y4xPgTFeQN
Það var því ákveðin pressa á Cao Yuan og Yang Hao sem kepptu í dag og ekki minnkaði pressan þegar Yang Hao átti misheppnaðar dýfur en Cao Yuan lét það ekki á sig fá og innsiglaði yfirburði Kínverja á leikunum í ár.
Þetta voru fjórðu Ólympíuleikarnir í röð þar sem Cao Yuan vinnur til gullverðlauna sem gerir hann að sigursælasta dýfingakappa allra tíma ásamt Greg Louganis en þetta var jafnframt í fyrsta sinn síðan 1988 sem karlkyns keppandi í dýfingum vinnur gull af hæsta bretti tvo Ólympíuleika í röð og það var einmitt áðurnefndur Greg Louganis sem gerði það.
𝑫𝒊𝒗𝒊𝒏𝒈 𝑫𝒐𝒎𝒊𝒏𝒂𝒕𝒊𝒐𝒏 🥇🥇🥇🥇🥇🥇🥇🥇
— Eurosport (@eurosport) August 10, 2024
The People's Republic of China have made Olympic diving history by winning all eight Gold medals on offer, a feat which has never been achieved before 🤯#Paris2024 pic.twitter.com/Wo1ZZeVdCZ