Blake Lively sló upphaflega í gegn í dægurmenningunni fyrir hlutverk sitt sem tískudrottningin Serena Van Der Woodsen í hinum gríðarlega vinsælu sjónvarpsþáttum Gossip Girl. Hún er sömuleiðis athafnakona, gift Ryan Reynolds, besta vinkona Taylor Swift og fer með aðalhlutverk í nýju rómantísku gamanmyndinni It Ends With Us.
Nýverið hafa sprottið upp sögusagnir af rifrildi á milli Blake Lively og Justin Baldoni, sem er leikstjóri og meðleikari Lively í myndinni. Lítið sem ekkert hefur sést til Baldoni á markaðsviðburðum tengdum kvikmyndinni, hann og Lively hafa ekkert verið mynduð saman og virðist leikhópurinn hafa snúið baki við honum.
Þá hefur markaðsherferð leikhópsins sömuleiðis verið gagnrýnd en kvikmyndin fjallar meðal annars um heimilisofbeldi og hefur enginn úr hópnum annar en Baldoni rætt opinberlega um slík málefni. Lively hefur hins vegar nýtt tækifærið og auglýst áfengisfyrirtæki sitt og samstarfsaðila sína í auglýsingaherferðinni fyrir myndina.
Á Instagram hjá Lively skrifa nokkrir athugasemd til varnar Baldoni og segja að Lively hafi komið illa fram við hann.
Það ríkir gjarnan mikil eftirvænting hjá tískuunnendum eftir septemberblaði Vogue og sömuleiðis þykir það mikill heiður að prýða forsíðu þess. Því er ekki að undra að fólk hafi skiptar skoðanir á máli sem þessu. Listræni stjórnandinn og leikstjórinn Baz Luhrmann sá um forsíðuna og eiga hann og Lively gott samband en í viðtalinu segist hún meðal annars elska mest að vinna með honum.
Í athugasemdum á Instagram hjá Vogue skrifa netverjar meðal annars að þeir skilji ekki hvað Blake hafi gert til að verðskulda forsíðuna og að það sé ekki hægt að segja að hún sé kvikmyndastjarna. Einn skrifar: „Kvikmyndastjarna? Meinarðu ekki bara hvít og ljóshærð?“ og annar „Blake Lively og Ryan Reynolds eru bæði C-lista leikarar en láta alltaf eins og þau séu flottari“.
Annar notandi segir að það hefði verið betur við hæfi að setja til dæmis bandaríska fimleikaliðið frá Ólympíuleikunum á forsíðuna. Þá segja sumir að listræna stjórnunin hafi verið glötuð, „Ég hef elst um 80 ár við að skoða þessa forsíðu,“ og „ó nei, þetta hafði svo mikla möguleika,“ eru meðal athugasemda.
Þó eru aðrir í skýjunum með forsíðuna og segja að Baz hitti alltaf naglann á höfuðið í listsköpun sinni, Blake sé stórglæsileg og fullkomin og fleira í jákvæðum dúr.