Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Ungfrú Ísland
Keppnin um Ungfrú Ísland fór fram í Gamla bíó síðastliðið miðvikudagskvöld. Kolbrún Pálína Helgadóttir fegurðardrottning og athafnakona var í dómnefnd og klæddist afar glæsilegum grænum pallíettukjól.
Skemmtikrafturinn Eva Ruza var kynnir keppninnar í níunda sinn.
Þjóðbúningurinn nýtist líka í golfi
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra klæddist íslenska þjóðbúningnum í golfi á dögunum.
Brúðkaup
Fanney Ingvarsdóttir og Teitur Páll Reynisson giftu sig í Dómkirkjunni á laugardag. Jón Jónsson tók lagið og söng lagið þegar ég sá þig fyrst. Að athöfn lokinni var haldið í Gamla bíó þar sem gestum var boðið upp á dýrindis veitingar og tónlistarveislu. Fjöldi tónlistarmanna tóku lagið og má þar nefna Friðrik Dór, Jón Jónsson, Herra Hnetusmjör, Birnir, Kristmundur Axel, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson. Þá voru fjöldi áhrifavalda meðal gesta líkt og við var að búast.
Stjörnuparið Helgi Ómarsson og Pétur Björgvin Sveinsson létu sig ekki vanta.
Birgitta Líf Björnsdóttir var meðal gesta og klæddist vínrauðum síðkjól í brúðkaupinu.
Anna Guðný Ingvarsdóttir, systir Fanneyjar, var stórglæsileg að vanda.
Rakel Orradóttir markþjálfi og áhrifavaldur og Rannver Sigurjónsson kírópraktor létu pússa sig saman við fallega athöfn í Hallgrímskirkju.
Feðgar í veiði
Guðmundur Jörundsson fatahönnuður fór með syni sínum í veiði.
Sól í Reykjavík
Tónlistarkonan Elísabet Ormslev naut veðurblíðunnar um helgina.
Skáluðu fyrir enska boltanum
Brynja Dan Gunnarsdóttir fagnaði því að enski boltinn væri byrjaði og skálaði með góðum vinum.
Fjölskyldufrí
Hjónin, Snorri Másson fjölmiðlamaður og Nadine Guðrún Yaghi samskiptastjóri Play, fóru í frí með fjölskyldunni til Barcelona.
Sumargleðin
Tara Sif Birgisdóttir áhrifavaldur og dansari birti nokkrar skemmtilegar myndir frá sumrinu.
Íslensk náttúra eða málverk
Ofurhlaupakonan Mari Jaersk hljóp um í fagurgrænum mosa sem hún líkti við málverk.
Ný plata hjá Kopboi
Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör gaf út nýja plötu á dögunum sem heitir, Legend í leiknum.
Partýtónleikar Palla og Sinfó
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson kom fram í Hörpu á sannkölluðum partýtónleikum með Sinfóníuhjómsveit Íslands um helgina.
Telur niður dagana í frumburðinn
Listakonan Sunneva Ása Weishappel telur niður dagana í frumburð sinn en hún á von á stúlku með sambýlismanni sínum Baltasar Kormáki.