Skoðun

Verndum ís­lenskuna! (Nema það kosti pening)

Vilhelm Þór Neto skrifar

Notkun gervigreindar á Íslandi hefur aukist heilmikið upp á síðkastið. Nemendur nota hana til að skrifa ritgerðir, grafískir hönnuðir nota hana sem hjálpartól, einmanna menn nota hana sem rafræna kærustu, og svo framvegis.

Mér hefur þótt bagalegt að sjá gervigreindina notaða í auknum mæli til að koma í staðinn fyrir listræna vinnu, sem hefði verið falin fólki með sértæka listræna reynslu. Listin umlykur okkur, ekki bara í formi mynda og tónlistar heldur líka í byggingunum sem við heimsækjum eða virðum fyrir okkur, í textum og bókunum sem við lesum og svo mætti lengi telja.

Nýlega hefur útgáfufyrirtæki, sem er starfrækt meðal annars á Íslandi, tekið upp á að losa sig við einn slíkan miðjumann, þýðandann, og láta gervigreind þýða heilu bækurnar. Það þykir mér afar sorgleg þróun. Mér finnst ekki galið að giska á að það sé gert til þess að spara pening, en hversu mikil aukavinna leggst þá á prófarkalesara og jafnvel manneskjuna sem les inn á hljóðbókina?

Þessi svokallaði ‘óþarfa’ miðjumaður, sem þýðandinn er, er ekki bara manneskja sem kann að leggja skilning í ákveðin orð á mismunandi tungumálum. Þýðandinn er manneskjan sem rýnir í heim og menningu verksins á sínu upprunalega máli og sér til þess að öll blæbrigði orða og frásagnar í menningarlegum heimi sögunnar komist til skila yfir í allt annan menningarheim, okkar eigin, lesandans.

Íslensk listsköpun er einstök, hlaðin menningu okkar og sögu, og skyldi einhver utan okkar menningarheims vilja upplifa hana treysti ég manneskju með reynslu, með sál, sögu og sköpunargleði, til verksins frekar en verkfæri sem skilar af sér verkinu á ofurhraða með útreikningi þannig að útkoman verður skiljanleg, en boðskapurinn kemst kannski ekki til skila.

Gleðin í að skapa og að búa til list er ekki til bara hjá listamönnum, hún er til hjá börnum sem vilja segja foreldrum sínum sögur sem þau fundu upp, hún er til hjá mönnum sem dettur í hug að blanda malt við appelsín, hún er til hjá ömmum sem eru einstaklega góðar í að rifja upp minningar, hún er til hjá okkur öllum.

Viljum við virkilega skipta út innsæi og sköpunargleði fyrir meiri peninga?

Ég spurði gervigreindina, hún sagði nei.

Höfundur er leikari.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×