Skoðun

Það er verið að hafa okkur að fíflum.

Davíð Bergmann skrifar

Íslensk pólitík er eins og leikrit fáránleikans. Vinstri grænir ætla að greiða um það hvort það eigi að fara í stjórnarslit. Dómsmálaráðherra brýtur lög vísvitandi í þeirri von að halda Vinstri grænum góðum og til að halda stjórnarsamstarfinu saman. Framsóknarflokkurinn heldur áfram að vera með glærusýningar um samgöngumál og nú er svo komið að Seðlabankinn slær á puttana á fjármálaráðherra með brúarsmíðina á Ölfusárbrú. Hvað er þetta annað en leikrit fáránleikans?

Þetta minnir svolítið á upplýsingaráðherrann sem var hjá Saddam Hussein í Írakstríðinu sem lýsti yfir sigri gegn bandamönnum með bandaríska skriðdreka í bakgrunni þegar vestrænir fjölmiðlar voru að taka viðtal við hann. „Þetta er allt að koma“ er slagorðið og þau stórkostlegu afrek sem þessi ríkisstjórn hefur unnið á kjörtímabilinu og að við almenningur skulum ekki sjá það. Skilja ekki þessir ráðamenn, hvað getur þá þetta ekki verið annað en leikrit fáránleikans þegar stýrivextir á húsnæðislánum hafa verið 9,25% í meira en eitt ár?

Getur verið að fólkið í efstu lögunum sem lifa í píramídanum sé eins og sjálfstæð lífvera sem nærir sig og sína og viðheldur sér með því að hafa alltaf sömu hirðina í kringum sig og sé þess vegna ekki í tengslum við líf almennings, svona álíka og gerðist í frönskubyltingunni? Ég held að þessi píramídi sé á hvolfi og risið sé rosalega flott en kjallarinn sé að molna.

Á sama tíma og okkur er sagt að „þetta sé allt að koma“ ríki viðvarandi húsnæðisskortur. Þá verður að segjast eins og er að það er furðuleg forgangsröðun að þá þurfi að kaupa skotfæri fyrir erlendan her. Á sama tíma og samgöngumál og heilbrigðiskerfið standa á brauðfótum, svo ekki sé minnst á heilbrigðiskerfið, menntamálin og löggæsluna. Þessi viðvarandi húsnæðisskortur gerir það að verkum að unga fólkið okkar kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn, og líka vegna þess að það kemst ekki gegnum greiðslumat? Hver er þá framtíðin fyrir land og þjóð þegar fæðingartíðni er í sögulegu lágmarki og af hverju ætti þá unga fólkið okkar að vilja vera hérna? Eftir hverju er verið að bíða? Ríkisstjórnin er búin að missa traustið fyrir löngu síðan. Um hvað fjallar þetta? Það myndi enginn þjálfari halda starfinu sínu í boltanum ef hann væri fyrir löngu búinn að missa klefann eins og þessi ríkisstjórn er búin að gera. Hættið að hafa fólk að fíflum og segið þetta gott og slítið þessu stjórnarsamstarfi.

Höfundur er Miðflokksmaður




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×