Skoðun

Er Mið­flokkurinn fyrir ungt fólk?

Anton Sveinn McKee skrifar

Viðbrögðin sem stjórnin í Freyfaxa, ungliðahreyfingu Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, hefur fengið eftir stofnfundinn föstudaginn 20. september hafa verið mögnuð og birtingarmynd þess að ungt fólk var að bíða eftir nýjum valkosti fyrir ungliðahreyfingu. Besta svarið við spurningunni sem titill þessarar greinar leggur fram er að spyrja sjálfan sig: Finnst þér núverandi ríkisstjórn vinna fyrir hagsmunum yngri kynslóða og þjóðarinnar? Ég upplifi það ekki og þess vegna tók ég þátt í stofnun Freyfaxa.

Framtíðarsýn hreyfingarinnar er Ísland sem land tækifæranna – þar sem allir hafa tækifæri til að blómstra. Þó er ljóst að áskoranirnar sem þjóðin stendur frammi fyrir eru erfiðar. Einstaklingur þarf ekki að vera hagfræðingur til að sjá að verðbólga og hátt húsnæðisverð gera ungu fólki erfitt fyrir að komast inn á markaðinn. Skólakerfið, sem er burðarás framtíðarinnar, þarf umbætur til að mæta alþjóðlegum stöðlum. Borgarar upplifa sig óörugga og fleiri fréttir af skipulögðum glæpasamtökum á Íslandi birtast á miðlum. Stefna í orkumálum, sem er ein af grunnstoðum atvinnustarfsemi á landinu, hefur hægt og rólega verið að sigla í átt að ísjaka og munum við nú horfa fram á glötuð atvinnutækifæri sem verða ekki til vegna yfirvofandi orkuskorts. Það vantar aðhald í ríkisfjármálum sem þýðir að yngri kynslóðir munu þurfa að axla þungar byrðar þeirra ákvarðana sem teknar hafa verið á undanförnum árum.

Þrátt fyrir þetta segja stjórnvöld okkur að ofangreind upptalning sé ekki rétt, við séum einfaldlega að upplifa hlutina rangt; Ísland hafi aldrei áður upplifað eins hagvöxt og hér sé best að búa. En ef almenningur finnur ekki fyrir því, hvaða máli skiptir það hvað Excel-skjölin segja? Fyrir hvern er þessi hagvöxtur?

Íslenska þjóðin stendur á krossgötum. Til að tryggja áframhaldandi velferð og tækifæri fyrir komandi kynslóðir þarf að nálgast pólitíkina á lausnarmiðaðan hátt og með skynsamari stefnumótun. Miðflokkurinn mun leiða þessa breytingu því undirstöður flokksins eru gildi sem standa með landi og þjóð af skynsemishyggju og skapa vettvang þar sem ungt fólk getur tekið virkan þátt og mótað sína eigin framtíð. Freyfaxi mun vera leiðandi afl í að virkja ungt fólk í Suðvesturkjördæmi til að skapa betra Ísland til frambúðar.

Nú er tíminn til að taka af skarið og móta framtíðina saman. Vertu hluti af þessari breytingu og taktu þátt með okkur á Nýliðakvöldi Freyfaxa þann 28. september kl. 20:00 í Hamraborg 1.

Áfram Ísland!

Höfundur er formaður Freyfaxa, ungliðahreyfingar Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×