Dómsmálaráðherra hefur boðað endurskoðun á áfengisslöggjöfinni með það fyrir sjónum að skýra lagarammann um netverslun með áfengi, sem óvíst virðist vera hvort sé lögleg.
Að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun var Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra spurður að því hvernig honum lítist á mögulega rýmkun reglna um sölu áfengis.
„Nei, ég er í hina áttina. Það er í okkar stefnu í krafti forvarna. Það verður að láta reyna á þessar kærur, sem eru í gangi, fyrir dómstólum, um lögmæti þessa. Vegna þess að við erum með skýr lög, sem eru bæði með markmiðsákvæðum um forvarnir, ekki síst hvað varðar börn og unglinga, og líka hver má afhenda og selja þessa vöru. Sem er ÁTVR.“