Ásgeir segir það hafa verið jákvætt skref og mjög mikil tímamót þegar skrifað var undir samgöngusáttmálann 2019. Þá hafi sveitarfélögin náð saman um það sem þarf að gera á höfuðborgarsvæðinu og í hvaða röð. Sáttmálinn var endurskoðaður og skrifað undir í ágúst. Uppfærslunni fylgdi nokkur kostnaðarauki eins og hefur verið fjallað um. Heildarkostnaður er um 311 milljarðar.
Ásgeir segir Sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ hafa samþykkt uppfærsluna en þeir hafi nokkrar áhyggjur af tímalínunni og hvað eigi að gera þangað til allar þessar framkvæmdir eru komnar í gangið.
„Það sem okkur finnst vanta í samninginn er að bregðast við þessum forsendubresti sem hefur orðið frá því að það var skrifað undir hann 2019,“ segir Ásgeir. Það hafi fjölgað um 21 þúsund íbúa og um 16 þúsund bíla.
„Þetta er langt umfram það sem var reiknað með í mannfjöldaspá og bílafjölda. Bara þetta eitt eykur rosalega á vandann,“ segir Ásgeir.
Þá sé í uppfærslunni verið að seinka stofnframkvæmdum eins og mislægum gatnamótum á Bústaðavegi. Fyrir uppfærsluna hafi verið á plani að ljúka því 2026 en nú sé áætlað að ljúka því 2030. Hann segir að þetta hafi verið rætt í nefnd í Reykjavík og minnihluti lagt til að þessari framkvæmd yrði aftur flýtt en því hafi verið hafnað af meirihluta.
„Okkur finnst skipulagið í Reykjavík vera að koma í veg fyrir að bílarnir fái eðlilegt pláss í þessu framtíðarskipulagi,“ segir Ásgeir. Það sé sífellt verið að þrengja að einkabílnum og mynda tafir. Því það sé gert ráð fyrir því að fólk muni nýta Borgarlínuna þegar hún verði tilbúin.
Peningunum vel varið
Hvað varðar kostnaðinn við áætlunina segir Ásgeir auðvitað fjárhæðina háa sem sé ætlað í þessar framkvæmdir en í stóra samhenginu séu þetta ekki endilega miklar fjárhæðir.
„Til 2030 verður þetta einn þriðji af þeim framkvæmdum sem eiga að fara í samgöngur hjá sveitarfélögunum,“ segir Ásgeir.
Hann segir sáttmálann góðan og að peningunum sé vel varið. Það sé mikið af fólki sem myndi vilja nýta almenningssamgöngur meira í dag en það gerir.
„En á meðan strætó er fastur í sömu umferð og við, einkabíllinn, þá gerist ekkert í því.“
Hvað varðar Sundabraut eða Sundabrú segir Ásgeir framkvæmdir eiga að hefjast 2026. En það sé margt enn óljóst um hana. Hvar hún kemur upp báðu megin. Það skipti öllu máli að tengingar séu í lagi svo hún virki.
Verði að liðka fyrir umferð á meðan er beðið
Ásgeir segir enn langt í að allar þær framkvæmdir sem séu áætlaðar eins og Fossvogsbrú og Miklabraut komist í notkun. Þangað til verði að liðka til í umferðinni með einhverjum tímabundnum lausnum.
„Það gerist ekkert fyrr en eftir fyrr en kannski sex eða sjö ár,“ segir hann og að það verði allir að koma að borðinu, skóla og vinnustaði til dæmis.