Salurinn rúmar 200 manns og hentar vel fyrir flestar tegundir af viðburðum og veislum. „Hér hafa verið árshátíðir, afmæli, brúðkaup, fermingar, jólahlaðborð og allar þessar helstu veislur,“ segir Sigrún Ebba Urbancic, framkvæmdastjóri og annar af eigendum Sykursalar.
„Á virkum dögum erum við svo mikið að fá til okkar ráðstefnur, vinnustofur, vörukynningar og þess háttar.“

Glæsileg hönnun og frábær staðsetning
Sykursalur er frábærlega staðsettur í húsinu Grósku í Vatnsmýri, sem er ein af glæsilegri byggingum landsins, steinsnar frá miðbæ Reykjavíkur. Salurinn sjálfur var fallega hannaður af HAF Studio.

„Það var engu til sparað við hönnun salarins. Við lögðum líka mikla áherslu á fallega lýsingu,“ segir Sigrún, en samspil ljósanna og sjónsteypunnar í salnum er einstakt.
„Fólk getur valið á milli mismunandi lita á veggljósunum í veislum og skapað þannig þá stemningu sem það vill.“
Sigrún segir að við val á húsgögnum hafi verið haft í huga að geta raðað salnum upp á ólíka vegu og fyrir mismunandi fjölda fólks.
„Borðin í salnum eru úr svartri eik og eru í hentugri stærð svo hægt er að stilla þeim upp á mismunandi hátt eftir því hvað hentar hverjum og einum viðburði. Stólarnir eru svo bæði fallegir og þægilegir,“ segir hún.

Fullkominn tækjabúnaður sparar kostnað
Í Sykursal er fyrsta flokks hljóðkerfi og ljósabúnaður frá Exton, ásamt sýningartjaldi, sviði og hljóðnemum. Fólk þarf því ekki að leigja slíkan búnað aukalega.
„Viðskiptavinir okkar hafa verið sérstaklega ánægðir með hvað salurinn er vel tækjum búinn. Notkun á þeim er öll innifalin í leiguverðinu,“
Margt af vinsælasta tónlistarfólki og skemmtikröftum landsins hefur troðið upp í salnum á þeim fjölmörgu viðburðum sem þar hafa verið haldnir undanfarin tvö ár. „Hér hafa verið frábærar veislur. Það myndast alveg einstök stemning,“ segir Sigrún.

Þrif og borðbúnaður innifalin í leiguverði

Sigrún segir að í Sykursalnum sé mikið lagt upp úr því að auðvelda fólki lífið og minnka álagið sem getur fylgt því að halda veislu eða viðburð.
„Það á að vera ánægjulegt að halda veislu og gleðjast með fólkinu sínu. Við leggjum okkur fram við að veita frábæra þjónustu,“ segir hún. Í salnum er fullbúinn bar. Hægt er að leigja salinn bæði með og án veitinga og borðbúnaður fylgir með. Þrif eru sömuleiðis innifalin í leiguverðinu.
„Fólki þykir þægilegt að þurfa ekki að hugsa um þrif að veislu lokinni. Það getur bara klárað veisluna og haldið áhyggjulaust heim að henni lokinni.“
Góð hljóðvist breytir miklu

Sigrún segir einn af helstu kostum Sykursalar vera einstaklega góða hljóðvist. Fólki líði vel í salnum og þar sé þægilegt að hlusta á atriði sem eru í gangi eða tala saman. Salurinn er vel hljóðeinangraður og hentar afar vel fyrir bæði tónleika og uppistand.
Uppistandið Púðursykur var einmitt sýnt í salnum síðasta vetur og nú í september var ný sýning, Meiri Púðursykur, frumsýnd í salnum. Í Púðursykri koma fram nokkrir af vinsælustu grínistum landsins og hafa sýningarnar notið fádæma vinsælda.
Nánari upplýsingar um Sykursalinn má finna á sykursalur.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið sigrun@sykursalur.is.



