Rafíþróttir

Jötunn og Böðlar berjast í bökkum á botninum

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Lið Böðla mátti sín ekki mikils gegn Dusty og þeir munu berjast á botninum við Jötunn í næstu umferð.
Lið Böðla mátti sín ekki mikils gegn Dusty og þeir munu berjast á botninum við Jötunn í næstu umferð.

Þrír leikir fóru fram í 4. um­­­ferð Tölvu­lista­­deildarinnar í Overwatch á laugar­­daginn og að henni lokinni er lið Þórs enn í efsta sæti eftir 3-0 sigur á Jötni í „svaka­legum leik“ eins og Óskar og Guð­ný Stefanía orðuðu það í beinni út­sendingu frá um­ferðinni.

Úrslit 4. umferðar:

Böðlar - Dusty 0-3

Þór - Jötunn 3 -0

Selir-Tröll-Loop 3 - 2

Dusty átti heldur ekki í miklum vandræðum með Böðlana og lagði þá 3-0 þannig að þeir og Jötunn berjast í bökkum á botninum en, eins og Óskar benti á, munu liðin einmitt mætast í næstu umferð í algerum botnslag. 

Óskar og Guðný Stefanía lýstu meðal annars „svakalegum leik“ Þórs og Jötuns í 4. umferð Tölvulistadeildarinnar í Overwatch.

Óskar bætti því við að bæði liðin myndu berjast í örvæntingu fyrir sigri og Guðný Stefanía sagðist ekki reikna með öðru en hörkuleik.

Auk leiks Jötuns og Böðla munu annars vegar Tröll-Loop og Dusty takast á í 5. umferð á laugardaginn og hins vegar Selir og Þór.


Tengdar fréttir

Sam­stilltir Þórsarar af­greiddu ryðgaða Böðla

Þrír leikir fóru fram í 2. um­ferð Tölvu­lista­deildarinnar í Overwatch á laugar­daginn og að henni lokinni er lið Þórs í efsta sæti eftir 3-0 sigur á Böðlunum sem máttu sín ekki mikils gegn þéttum and­stæðingum sem hafa lengi spilað saman.






×