Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. október 2024 08:48 Brückner bjó um árabil nálægt þeim stað þar sem McCann hvarf. Hann verður að óbreyttu látinn laus á næsta ári. Getty/Alexander Koerner Christian Brückner, sem liggur undir grun um að hafa rænt Madeleine McCann, hefur verið sýknaður af þremur nauðgunum og tveimur kynferðisbrotum gegn börnum.
Brotin voru sögð hafa átt sér stað í Portúgal á árunum 2000 til 2017 en dómarinn í Braunschweig í norðurhluta Þýskalands hafði gefið til kynna í sumar að málalok yrðu þessu, þegar hann sagði ónóg sönnunargögn liggja fyrir. Brückner mun áfram sitja í fangelsi, þar sem hann er dæmdur barnaníðingur og kynferðisbrotamaður og afplánar nú dóm fyrir að hafa nauðgað 72 ára konu frá Bandaríkjunum í Praia da Luz, þar sem McCann hvarf, árið 2005. Hann verður að óbreyttu látinn laus í september á næsta ári. McCann málið kom ítrekað við sögu í réttarhöldunum yfir Brückner og lögmaður hans sagði það hafa „legið eins og þoka“ yfir málunum sem raunverulega voru til umfjöllunar. Yfirvöld í Þýskalandi hafa ítrekað sagst hafa óyggjandi sönnunargögn fyrir því að Brückner hafi átt þátt í ráninu á McCann en hafa ekki viljað greina nánar frá málavöxtum. Þá hefur lítið verið greint frá stöðu rannsóknar málsins. McCann hvarf úr leiguíbúð fjölskyldu sinnar á Praia da Luz árið 2007. Hún var þá sofandi í íbúðinni ásamt yngri systkinum sínum en foreldrar hennar voru á veitingastað með vinum, í um 50 metra fjarlægð. Madeleine var þriggja ára þegar hún hvarf.
Þýskaland Portúgal Erlend sakamál Madeleine McCann Mest lesið Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Innlent Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn geti starfað til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Fleiri fréttir Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Sjá meira