Dusty sigraði fjandvinaslaginn við Ármann Þórarinn Þórarinsson skrifar 9. október 2024 10:12 Dusty og Ármann áttust við í 6. umferð Ljósleiðaradeildarinnar á þriðjudagskvöld eftir að hafa hitað uop með smá skeytasendingum fyrir leik. Stálin stinn mættust þegar fjandvinaliðin Dusty og Ármann tókust á í eina leik 6. umferðar Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld.
Sjötta umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst á mánudag þegar Þórsarar lögðu Rafík 2-0. Baráttan hélt síðan áfram á þriðjudagskvöld með einum leik þar sem Dusty og Ármann tókust á. Talsverð spenna var í kringum viðureign liðanna enda hafa bæði barist í efri lögum deildarinnar og eins og kom fram í beinu útsendingunni í gær hefur löngum verið grunnt á því góða milli liðanna og einhver skeyti gengu á milli liðanna fyrir leik. Þegar upp var staðið þurftu Ármenningar þó að kyngja 2-0 tapi og Dusty þar með aftur komið á topp deildarinnar með Þórsara á hælunum en bæði lið eru með 12 stig eftir leiki sína í umferðinni. Ármann heldur enn 3. sætinu, í það minnsta fram á fimmtudagskvöld þegar umferðin klárast með leikjum ÍA og Hattar, botnslag Kano og Venus og leik Sögu og Veca, sem verður lýsti í beinni, en með sigri getur Veca rutt Ármanni úr þriðja sætinu. Staðan í Ljósleiðaradeildinni þegar þrír leikir eru eftir í 6. umferð.
Rafíþróttir Tengdar fréttir Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Fjórðu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike lauk í gærkvöld með þremur leikjum þar sem Dusty sigraði Rafík 2-0, Saga lagði Kano 2-1 og Þór hafði betur gegn ÍA 2-0. 27. september 2024 09:44 Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti
Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Fjórðu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike lauk í gærkvöld með þremur leikjum þar sem Dusty sigraði Rafík 2-0, Saga lagði Kano 2-1 og Þór hafði betur gegn ÍA 2-0. 27. september 2024 09:44