Hér má sjá lista yfir frumlega og skemmtilega hrekkjavökubúninga sem súperstjörnur heimsins hafa skartað í gegnum tíðina:
Heidi Klum sem ormur og Fiona úr Shrek
Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum fer undantekningalaust alla leið á hrekkjavökunni og ber höfuð og herðar yfir aðra hrekkjavökuunnendur. Þá er maðurinn hennar Tom Kaulitz óhræddur að klæða sig upp í þemað með henni. Heidi heldur sömuleiðis söguleg hrekkjavökuteiti og Rúrik Gíslason var meðal gesta hjá henni í fyrra.
Það er erfitt að velja bestu búninga Heidi Klum en hér eru nokkrir sem standa upp úr:



Zoe Kravitz og Channing Tatum sem Rosemary og barnið
Sjóðheita stjörnuparið Zoe Kravitz og Channing Tatum klæddu sig upp sem Rosemary og barnið úr kvikmyndinni Rosemary's Baby í leikstjórn Roman Polanski.

Paris Hilton sem Britney Spears
Goðsögnin Paris Hilton klæddi sig upp sem Britney Spears úr goðsagnakenndu tónlistarmyndbandi við lagið Toxic. Ofurskvísulegur flugfreyjubúningur sem aðdáendur söngkonunnar gleyma seint.

Hér má sjá sögulega tónlistarmyndbandið við Toxic:
Kendall Jenner sem gúrka
Raunveruleikastjarnan og fyrirsætan Kendall Jenner klæddi sig upp sem gúrka árið 2022 og gerði í leiðinni grín að því hvað hún átti erfitt með að skera gúrku í þætti af Kardashians. Þessi búningur á vel við í ár þar sem gúrkur hafa verið gríðarlega vinsælar og uppseldar í fjölda matvöruverslanna.

Lizzo sem Yoda
Tónlistarkonan Lizzo lagði mikið upp úr hrekkjavökubúningnum 2021 og tróð upp sem Yoda úr Star Wars myndunum.

Hún vakti líka mikla athygli sem Marge Simpson árið 2022.
Bella Hadid og The Weeknd sem Beetlejuice og Lydia
Bella Hadid og The Weeknd voru par í dágóðan tíma. Á hrekkjavökunni 2018 klæddu þau sig upp sem sögulega tvíeykið Beetlejuice og Lydia úr kvikmyndinni Beetlejuice frá árinu 1988. Framhaldsmynd Beetlejuice kom út í ár og því vel við hæfi að klæða sig upp í þessa búninga núna!

Janelle Monae sem Jim Carrey í The Mask
Tónlistarkonan Janelle Monae fór alla leið í karakter Jim Carrey úr myndinni The Mask.

Emily Ratajkowski sem Marge Simpson
Fyrirsætan og hlaðvarpsstýran Emily Ratajkowski var gul og glæsileg sem Marge Simpson í hrekkjavökuteiti árið 2015.

David Kersh sem hlébarði
Tónlistarmaðurinn David Kersh fór alla leið árið 2005 í mjög einstökum búning.

Emma Kenney sem málverk
Leikkonan Emma Kenney mætti í fyrra í einstaklega frumlegum búning sem málverk sem minnir á Picasso.

Kim Kardashian og North West sem Clueless tvíeykið
Súperstjarnan Kim Kardashian og dóttir hennar North West klæddu sig upp sem Cher og Dionne úr næntís skvísumyndinni Clueless á hrekkjavökunni í fyrra.
Katy Perry sem vinsælt snakk
Tónlistarkonan Katy Perry klæddi sig upp sem vinsæla snakkið Cheetos árið 2014. Það er heldur betur hægt að útfæra þetta yfir á uppáhalds snakkið sitt. Skemmtilegt!

Harry Styles sem Elton John
Harry Styles klæddi sig upp sem önnur bresk goðsögn, Elton John, á hrekkjavökunni 2018.
