Play tilkynnti í fyrradag að félagið myndi ráðast í umfangsmiklar breytingar og draga verulega úr tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Á sama tíma yrði aukin áhersla sett á sólarlandaferðir. Vélum og starfsfólki á Íslandi muni fækka, og sótt verði um flugrekstrarleyfi erlendis.
Allt niður í eina krónu
Tilkynning félagsins virðist hafa farið öfugt ofan í fjárfesta. Í gær lækkaði gengi félagsins um 28,13 prósent og lækkunin hefur haldið áfram í dag. Það sem af er degi hefur gengið lækkað um 26,09 prósent og fór lægst niður í eina krónu.
Það var verðið í langsamlega stærstu viðskiptum dagsins en 71.651.440 hlutir voru seldir og keyptir klukkan 11 fyrir eina krónu á hlut. Í almennu hlutafjárútboði í apríl síðastliðnum kostaði hver hlutur í Play 4,5 krónur.
Fjögur félög koma til greina
Athygli vekur að aðeins fjögur félög koma til greina sem seljandi í viðskiptunum, allavega ef miðað er við nýjasta lista Kauphallarinnar, sem gefinn var út í lok september. Samkvæmt listanum á Birta lífeyrissjóður um 190 milljónir hluta, Stoðir hf. 110 milljónir hluta, Fea ehf., félags Elíasar Skúla Skúlasonar, 101 milljón og Leika fjárfestingar ehf., sem Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, stýrir, um 93,5 milljónir hluta.