„Þetta er lögbundið en ekki valkvætt. Þingmenn sem það fá rukka það ekki eða þiggja með sérstakri ákvörðun og geta ekki afþakkað það heldur samkvæmt upplýsingum sem ég fékk þegar ég spurðist fyrir um það á sínum tíma,“ segir Þórdís í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni í morgun.
Þórdís hefur frá árinu 2016 verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en býður nú fram í Suðvesturkjördæmi. Fjallað var um greiðslurnar á vef Vísis í gær en þar kom fram að fleiri þingmenn þiggi sömu greiðslur. Þórdís fjallar í færslu sinni um fréttina.
„Ég hef fengið greitt, eins og allir aðrir þingmenn landsbyggðarkjördæmanna, samkvæmt reglum sem finna má í lögum um þingfararkaup og þingfararkostnað. Þetta kemur til hvort sem þeir halda heimili í kjördæminu eða ekki og á við um þá alla. Séu þeir hins vegar skráðir með lögheimili í kjördæminu fá þeir hærri greiðslur en þetta,“ segir Þórdís og að þetta eigi ekki við um hana því hún haldi heimili í Kópavogi. Þar hafi hún búið allt frá því að hún settist á þing og þess vegna haldi hún ekki tvö heimili.
„Gagnrýni á að vera ekki með lögheimili í kjördæminu svaraði ég fyrir átta árum að rétt væri að greiða útsvar þar sem fjölskyldan þiggur þjónustu og rangt væri að þiggja hærri laun þegar ég ræki eitt heimili en ekki tvö,“ segir Þórdís Kolbrún.
Hún furðar sig á því að nafn hennar sérstaklega hafi verið dregið fram með þessum hætti, á þessum tímapunkti. Auðvelt sé að finna lög sem um þetta gildi á vef Alþingis ásamt upplýsingum um greiðslum til hvers og eins.