Jón Ingi Sveinsson 47 ára og Pétur Þór Elíasson 36 ára eru taldir vera höfuðpaurar í málinu. Þeir hafi skipulagt innflutninginn, útvegað öðrum hlutverk og greitt fyrir þátttöku í skipulögðum glæpum.
Málið, sem er afar umfangsmikið, hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu um langt skeið. Skemmtiferðaskipið AIDAsol kom til landsins þann 11. apríl síðastliðinn. Tveir menn báru eldhúspotta úr málmi út úr skipinu í bláum Ikea-innkaupapokum en þriðji maður tók við pottunum. Um 2,2 kíló af kókaíni fundust falin í pottunum.

Í greinargerð lögreglu sem birtist í gæsluvarðhaldsúrskurði á dögunum kom fram að lögregla teldi uppbyggingu og hlutverkaskiptingu innan hópsins hafa verið þaulskipulagða. Jón Ingi hafi verið í spjallhóp ásamt sjö öðrum á samskiptaforritinu Signal. Allir hafi þar verið undir dulnefni.
Jón Ingi er talinn hafa verið yfir allri starfseminni í söluhópnum. Þar hafi hann rætt starfsemina eins og um fyrirtæki væri að ræða og rætt um hlutverk allra í hópnum. Nefnt er að þegar ein konan var handtekin sagðist hann ekki hafa undirbúið hana nægilega vel varðandi hvernig hún ætti að bregðast við ef hún skildi verða handtekin.

Fíkniefni fundust meðal annars á heimilum foreldra fólks úr hópnum sem fyrir vikið er meðal sakborninga í málinu. Fólk komið á sjötugs- og áttræðisaldur. Þá kemur fram í greinargerð lögreglu að peningaþvætti hafi farið fram með því að láta poka troðfulla af peningum ganga á milli manna. Maður sem var tekinn með um tólf milljónir króna í poka sagðist við handtöku ekki hafa vitað hvað væri í pokanum.
Þá hefur annar sakborningur í málinu sem stöðvaður var á leið úr landi með um sextán milljónir króna í reiðufé í farangri sínum hafa ekkert kannast við peningana. Hann viðurkenndi síðar hafa fengið val að greiða tæplega milljón í fíkniefnaskuld eða fara með peningana úr landi.
Málið var þingfest í ágúst og neituðu allir sakborningar sök. Síðan þá hafa einn eða tveir breytt afstöðu sinni til málsins. Sakborningarnir huldu allir höfuð sín þegar þeir mættu til þingfestingarinnar. Margir voru með sólgleraugu á nefinu, hettu eða jafnvel sjal yfir andlitið. Höfðu engan áhuga á að þekkjast utan dómssalarins.

Svipað var uppi á teningnum í morgun þegar sakborningar streymdu í héraðsdóm. Vegna mikils fjölda sakborninga var planað að hafa streymi frá aðalmeðferðinni í öðrum sal í húsinu. Vísir mun fjalla um það sem fram fer í héraðsdómi.