„Þessi brjálaða en um leið skemmtilega hugmynd kviknaði sumarið 2023 þegar við vorum á tónleikaferðalagi í Austurríki,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, betur þekktur sem Bibbi, bassaleikari sveitarinnar. „Eigum við að segja að hún hafi kviknað eftir a.m.k. tvo bjóra en þá vorum við að ræða næstu áskoranir fyrir okkur og hvaða krefjandi verkefni við vildum takast á við næst. Skálmöld hefur aldrei verið hljómsveit sem hjakkast endalaust í sama farinu heldur þurfum við reglulega að ögra okkur rækilega. Þannig kom þessi hugmynd til, að spila allar sex plöturnar okkar á þremur dögum.“

Tónleikarnir eru haldnir næsta föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld í Eldborgarsal Hörpu. Allir tónleikarnir verða settir þannig upp að tvær plötur eru spilaðar á hverju kvöldi, ein fyrir hlé og önnur eftir hlé.
„Við ríðum á vaðið með Sorgir og Börnum Loka fyrsta kvöldið. Á laugardag spilum við Með vættum og Vögguvísur Yggdrasils og við lokum þessu á sunnudag með plötunum Ýdalir og Baldur. Lögin eru spiluð í sömu röð og kemur fyrir á hverri plötu sem gleður auðvitað vínylnörd eins og mig. Við bjóðum upp á svakalegt ljósvasjóv og textarnir verða birtir á tjaldi.“

Aldrei fyrstir með nokkurn hlut
Bibbi segir tónleikana þrjá leggjast mjög vel í þá félaga enda séu þeir vel slípaðir og þéttir eftir tónleikaferðir síðustu ára. „Það er ákveðinn sjarmi fólginn í því að leggja niður hljóðfærin eftir tónleika og pikka þau svo bara aftur upp á sama sviði degi síðar. Okkur finnst ágætt að vera ekki að dreifa þeim yfir lengri tíma en auðvitað verðum við þreyttir á mánudagsmorguninn eftir þrenna tónleika á þremur dögum og næstum 60 lög.“

Það er ekki á hverjum degi sem við sjáum hljómsveit af þessari stærðargráðu spila allar plötur sínar með þessum hætti, hvorki hér innanlands eða út í heimi. Þekkir hann einhver dæmi þess?
„Ég man ekki eftir að hafa heyrt um svona áður, við höfum a.m.k. enga fyrirmynd til að byggja á. En ég efast nú samt um að við séum fyrstir með nokkurn hlut þannig að líklega hefur einhver gert eitthvað svipað áður með kannski ólíkan plötu- og lagafjölda.“

Kór fullur af jákvæðni og réttu „attitjúdi“
Eins og fyrr segir verður kammerkórinn Hymnodia með í för en hann hefur sungið með sveitinni í þremur verkefnum á árunum 2012 til 2018. „Hymnodia verður með okkur á sviðinu en ekki til hliðar eins og bakraddaband. Kórinn söng fyrst með okkur á útgáfutónleikum Börnum Loka sem kom út árið 2012. Á þeim tíma þekktist ekki að blanda þessum formum saman og þótti smá flipp. Samstarfið gekk ótrúlega vel og þegar Sinfó hafði samband ári síðar vegna tónleika sem við héldum saman í Hörpu árið 2013 vildum við að sjálfsögðu hafa Hymnodia með okkur þar. Hann hefur því fylgt okkur í tólf ár og er einfaldlega frábær kór, fullur af jákvæðni og réttu „attitjúdi“.

Alltaf jafn gaman
Skálmöld var stofnuð árið 2009 af Bibba og Björgvini Sigurðssyni, söngvara og gítarleikara sveitarinnar. Sex stúdíóplötum, tveimur tónleikaplötum og mörgum tónleikaferðum víða um heim síðar er þetta enn „ógeðslega gaman“ að sögn Bibba. „Þetta er auðvitað ekki sami fiðringurinn og í gamla daga, hann hefur eðlilega breyst. Við höfum verið saman sömu sex meðlimirnir allan þennan tíma og farið í gegnum hæðir og lægðir. En við brennum enn fyrir hljómsveitinni okkar og nýjum áskorunum eins og þeirri sem við ætlum að bjóða upp á í Hörpu næstu helgi.“
Tónleikarnir þrír fara fram í Hörpu dagana 1.-3. nóvember og hefjast allir kl. 20. Miðasala fer fram á Tix.is.