Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar þar sem segir ennfremur að hiti í dag verði nærri frostmarki.
„Suðausturland og Austfirðir sleppa lengst af við úrkomu í dag. Þegar líða fer að kvöldi má búast við að bæti í vind með snjókomu á Austurlandi og síðar einnig á fjallvegum Austfjarða. Í kvöld lægir, styttir upp og kólnar. Tveggja stafa frosttölur munu eflaust láta á sér kræla í nótt, sérílagi í innsveitum.
Á morgun er spáð fremur hægri suðlægri átt. Víða bjart og kalt veður, en líklega aðeins af skýjum á sveimi með vesturströndinni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða léttskýjað. Frost 0 til 7 stig. Vaxandi austanátt sunnanlands seint um kvöldið með snjókomu eða slyddu.
Á laugardag: Breytileg átt 5-13. Rigning á sunnanverðu landinu og hiti 3 til 8 stig. Slydda eða snjókoma norðantil og hiti nærri frostmarki.
Á sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Ákveðin sunnanátt með rigningu eða súld, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti yfirleitt á bilinu 5 til 10 stig.