Skoðun

Á­bending um dag­skrár­efni til RUV ohf.

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Opið bréf til Stefáns Eiríkssonar úvarpsstjóra og Ingólfs Bjarna Sigfússonar

Heilir og sælir báðir tveir.

Þetta bréf er stílað á ykkur báða vegna þess að ekki er alveg skýrt á heimasíðu RUV ohf. hver ber ábyrgð á umfjöllum Kveiks en einnig vegna þess að ég bar upp svipað erindi við þáverandi ritstjóra þáttarins fyrir nokkrum árum án þess að það leiddi til nokkurs. Síðan hefur brostið nokkur flótti í lið Kveiks og er því nauðsynlegt að endurnýja erindið. Þetta bréf er ábending um dagskrárefni því eins og stendur á heimasíðu Kveiks: ,, Við þurfum á ábendingum frá fólki eins og þér að halda.” Erindið er opinbert því ég vil að það fólk sem á í hlut viti að ég er að senda ykkur þessa ábendingu. Þess vegna bið ég ykkur að svara erindinu með sama hætti. Erindið varðar afdrif og örlög þeirra sem misstu íbúðir sínar í hendur Íbúðalánasjóðs og einnig hverjir það voru sem eignuðust íbúðirnar við sölu og uppboð Íbúðalánasjóðs. Á árunum 2009 til 2019 hirti Íbúðalánasjóður um 4.200 íbúðir af skuldurum. Flestar voru boðnar upp. Með þessu misstu um tíu þúsund manns heimili sín. Menn konur og börn.

Kveikur fréttaskýringarþáttur RUV ohf var í fyrstu skilgreindur sem vettvangur rannsóknarblaðamennsku og hefur komið víða við. Ég minnist t.d. góðrar umfjöllunar um afdrif innflytjendafjölskyldu sem kom hingað sem flóttamenn en fjölskyldunni var fylgt eftir í nokkur ár. Við áhorf á þá umfjöllun hugleiddi ég nokkuð að Kveikur skyldi ekki hafa sett saman þátt/þætti um þá Íslendinga sem stóðu allt í einu uppi heimilislaus og eignalaus eftir hrun og fylgjast með afdrifum þeirra. Það fólk hefur verið og er væntanlega áskrifendur að dagskrá RUV eins og við erum flest dæmd til. Ég safnaði því saman gögnum, fékk leyfi nokkurra fjórnarlamba til að gefa upp nöfn þeirra og afhenti þáverandi ritstjóra Kveiks. Í stuttu máli gerðist ekkert. Áhugi var ekki til staðar til að taka málið upp. Það voru mikil vonbrigði að RUV sem segist vera okkar allra hafi ekki verið RUV þessa hóps.

Það hefur skort mjög á umfjöllun um áhrif hrunsins á almenning á Íslandi. Farið hefur veið ágætlega yfir aðdragandann m.a. í nokkrum skýrslum á vegum Alþingis en ekkert hefur verið fjallað um eftirmál hrunsins. Það er brýnt að fólk sem varð fyrir eignamissi í og eftir hrun fái einhvers konar lúkningu. Þessi hópur þarf réttlæti. Von mín er sú að RUV taki málefni þessa stóra hóps fólks til meðhöndlunar og varpi ljósi á það sem raunverulega gerðist.

Vonast eftir skýru og jákvæði svari.

Bestu kveðjur.

Þorsteinn Sæmundsson.

Höfundur skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×