Hér erum við að tala um systurnar Guðrúnu Huldu, Maríu og Sigríði, Sigurjónsdætur, sem eru að fara að keppa á Specal Olympics kraftlyfingingamóti föstudaginn 15. nóvember í Ljónagryfjunni í Njarðvík, sem er íþróttahús í Reykjanesbæ. Ísland verður með sjö keppendur en aldrei áður hafa svo margir keppendur frá landinu verið á alþjóðamóti fatlaðra í kraftlyftingum. Þjálfari systranna er mjög ánægð með þær.
„Þær eru helsterkar, samviskusamar og mjög öflugar íþróttakonur allar þrjár. Þær eru náttúrulega mjög skemmtilegar það er nú fyrir það fyrsta. Þær hlusta ekki á neitt múður. Ef ég gleymi mér og fer að tala við einhvern þá er bara kallað á mann á æfingu en það er alveg sama hvað ég spyr þær, ég hef áhyggjur kannski hvort þetta sé erfitt eða eitthvað en það er alveg saman, það er alltaf það sama, „ég er góð”, segir Þórunn Brynja Jónasdóttir, þjálfari systranna.
Og mamma systranna, Jóna mætir oft á æfingar hjá þeim og hvetur þær áfram og er að sjálfsögðu mjög stolt af þeim.
„Jú, auðvitað,” segir Jóna.

En hvernig leggst heimsmeistaramótið í systurnar?
„Við erum mjög spenntar, hrikalega vel, ég er ekkert eðlilega spennt,” segja systurnar.
En hvað er svona skemmtilegast við þetta allt saman?
„Bara að sjá hvað maður er sterkur og félagsskapurinn og við erum líka alltaf að bæta okkur og keppnin á móti hvor annarri,” bæta systurnar við.
En hver er nú sterkust af þeim systrum?
„Núna er það ég eins og er,” segir Sigríður en þá fóru Guðrún Hulda og María báðar að hlægja og bættu við að þær væru allar mjög góðar vinkonur og alltaf mjög duglegar að hjálpast að og hvetja hvor aðra áfram.
