Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Valur Páll Eiríksson skrifar 13. nóvember 2024 16:50 Landsliðsþjálfararnir Ágúst Jóhannsson og Arnar Pétursson sitja hér sitthvoru megin við formann HSÍ, Guðmundur B. Ólafsson, íklæddir galla frá Adidas. Vísir/VPE Athygli vakti að landsliðsþjálfarar og starfsmenn HSÍ voru klæddir í fatnað frá Adidas á blaðamannafundi vegna landsliðshóps Íslands fyrir komandi Evrópumót kvenna í handbolta. Ekkert var minnst á samstarf við íþróttaframleiðandann á fundinum.
Landsliðshópurinn var kynntur líkt og sýnt var frá beint á Vísi í dag. Þar sáust þeir Arnar Pétursson landsliðsþjálfari og Ágúst Jóhannsson aðstoðarlandsliðsþjálfari klæddir í boli frá Adidas sem merktir voru HSÍ. Starfsmenn HSÍ á staðnum voru þá ýmist klæddir í peysur og úlpur frá Adidas. Fyrr í vikunni greindi HSÍ þá frá því að tveggja áratuga löngu samstarfi við Kempa væri lokið og þykir ljóst fyrir liggja að Adidas tekur við framleiðslu búninga Íslands. Á skammvinnum fundinum var hins vegar ekkert minnst á Adidas eða samstarf HSÍ við framleiðandann. Fundurinn átti upprunalega að fara fram degi fyrr en var þá frestað með tæplega hálftíma fyrirvara og staðfesti Arnar í viðtali við Stöð 2 að sú frestun hefði ekki með landsliðshópinn að gera. Hvað veldur og hvar þetta samstarf HSÍ og Adidas stendur er spurning sem er ósvarað.
HSÍ Landslið kvenna í handbolta Handbolti Mest lesið Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 „Ég þarf smá útrás“ Handbolti Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern Fótbolti Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Körfubolti Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Enski boltinn Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Fótbolti Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Fótbolti Fleiri fréttir „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð „Við vorum bara klaufar“ Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Uppgjörið: Fram - FH 29-30 | Dramatík í Úlfarsárdal Arnar og Elvar á toppnum Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ „Í seinni hálfleik voru aðeins of margir tapaðir boltar“ „Maður er hálf meyr“ „Kannski svolítið galið þegar maður bakkar aðeins aftur í tímann“ Færeysku stelpurnar svöruðu frábærlega fyrir sig Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Sjá meira