Skoðun

Bleiki fíllinn í her­berginu

Karólína Helga Símonardóttir skrifar

Í von um atkvæði landsmanna, lofa nú fulltrúar flokka og framboða gulli og grænum skógum. Það virðist vera mörgum frambjóðendum auðveldara að lofa að gera eitthvað á þinn kostnað, frekar en að takast á við hin raunverulega vanda.

Staðreyndin er sú að mikilvægasta loforð sem við frambjóðendur getum gefið ykkur kæru kjósendur, er að fara vel með það sem okkur er trúað fyrir. Það er vitaskuld auðveldara og skemmtilegra að lofa nýjum framkvæmdum og nýjum verkefnum, frekar en að sinna viðhaldi og borga skuldir.

Frambjóðendur verða samt að sýna það hugrekki að tala um óþægilegu hlutina líka. Það er lágmarks kurteisi við þá sem við tölum við. Það verður að ræða bleika fílinn í herberginu, skuldastöðuríkissjóðsog þann miklar útgjaldalið sem vextirnir eru. Það verður að ná jafnvægi í ríkisfjármálum til þess að ná niður verðbólgu og vöxtum fyrir almenning og fyrirtæki í landinu.

Fulltrúar fyrrum ríkisstjórnar sem eru að skil af sér heilbrigðis- og menntakerfi sem eru vanfjármögnuð, innviðum sem margir hverjir eru löngu sprungnir. Svo má ekki gleyma að skattbyrðiá vinnandi fólk er með því hæsta, skattur sem er ekki að skila fjármagni til þess að bæta þjónusta og innviði landsins. Verðbólga og vextir í hæstu hæðum.

Það er ekki lausn að hækka skatta á vinnandi fólk

Til þessa bæta svo ofan á þetta allt saman þá munu skattar lögaðila hækka um 1% á næsta ár, í boði fyrrumríkisstjórn. Hvernig er það hægt, að finnast í lagi að leggja þessa endalausu fjárhagsábyrgð á vinnandi fólk og fyrirtæki, fólkið í landinu sem nú þegar finna fyrir miklum kostnaði vegna verðbólgu og hárra vaxta.

Viðreisn er með raunsæja stefnu, við erum ekki að kasta út innantómum loftköstulum íkosningaloforð! Það að vera með yfirlýsingar í sjónvarpi, á pallborði eða fundum um milljónir og jafnvel milljarða í hin eða þessi málefni er óábyrgt. Þeir sem kasta fram þessum loforðum, eru ekki þeir sem borga fyrir þau á endanum. Loforðin eru fjármögnuð af almannafé.

Við megum ekki leyfa okkur að stökkva á fyrsta kosningaloforðið því það hljómar svo vel. Það skiptir máli fyrir framtíðina okkar að fjárfesta atkvæðinu okkar í rétt mál.

Viðreisn hefur frá upphafi, talað með ábyrgum hætti. Orð og verk Viðreisnar sýna að við erum klár í þau verkefni sem brýnust eru. Fólk vill breytingar. Verkefnið er skýrt.

Þetta þarf ekki að vera svona – breytum þessu

Höfundur skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í SV kjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×