Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar en í dag og á morgun er spáð norðan átta til fimmtán metra á sekúndu – kalda eða stinningskalda.
„Sunnan heiða verður yfirleitt þurrt og bjart veður, en búast má við éljum annars staðar og stundum geta élin orðið dimm á norðaustanverðu landinu sem getur skapað vond akstursskilyrði og jafnvel þæfingsfærð á vegum. Frost 3 til 9 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag er útlit fyrir kalt veður áfram með svipuðum hætti, þó dregur heldur úr vindi og éljum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag: Norðan 8-15 m/s og él, en léttskýjað sunnantil á landinu. Frost 3 til 10 stig.
Á miðvikudag: Norðan 5-13 með éljum á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag: Norðaustan og austan 3-10. Él norðaustan- og austanlands, en víða þurrt og bjart annars staðar. Frost 5 til 12 stig.
Á föstudag og laugardag: Norðaustlæg átt með éljum, en léttskýjað sunnan heiða. Áfram kalt í veðri.
Á sunnudag: Vestlæg átt með éljum á vestanverðu landinu, en bjartviðri austantil. Frost um allt land.