Þetta kemur fram á Reykjavíkurborgar. Þar segir að Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur, undirrituðu samninginn ásamt Brynhildi Guðjónsdóttur, leikhússtjóra Borgarleikhússins.
Fram kemur að markmið samningsins er að í Reykjavík sé rekið fjölbreytt og metnaðarfullt leikhús þar sem sköpuð er og sýnd leiklist í hæsta gæðaflokki. Þar er jafnframt tekið fram að Borgarleikhúsið sé lifandi vettvangur nýsköpunar og kynningar á íslenskri leiklist þar sem erlendri klassík og samtímaleiklist sé einnig gerð góð skil, að samfella og framþróun sé tryggð í öflugu leiklistarstarfi, að listuppeldi barna og ungmenna sé sinnt sérstaklega og að starfsemi Borgarleikhússins höfði til borgarbúa og geri þeim kleift að njóta fjölbreyttra sviðslista.
Einar segir Borgarleikhúsið leika lykilhlutverk í menningarlífi borgarbúa og landsmanna allra.
„Við erum stolt og þakklát fyrir samstarfið við Leikfélag Reykjavíkur sem hefur starfað óslitið í borginni frá árinu 1897. Í leikhúsinu komum við saman og upplifum allar sterkustu tilfinningar mannlegrar tilveru og fátt færir okkur nær hvert öðru en einmitt sú upplifun. Þá er öllum reykvískum börnum boðið í heimsókn í Borgarleikhúsið á skólagöngu sinni og fá að upplifa töfra leikhússins.“