Tíska og hönnun

Steldu stílnum af Ás­laugu Örnu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Áslaug Arna mætti í þægilegum klæðnaði í Kappleikunum á Stöð 2 í vikunni.
Áslaug Arna mætti í þægilegum klæðnaði í Kappleikunum á Stöð 2 í vikunni. Vilhelm

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mætti í blárri íþróttapeysu frá danska hönnunarmerkinu Rotate í sjónvarpsþáttinn Kappleikar á Stöð 2 í vikunni. Peysan vakti mikla athygli þar sem hún er vön á mæta í sínu fínasta pússi.

Áslaug var meðal frambjóðenda sem tók þátt í fjörugum kappræðum á Stöð 2 í þriðjudagskvöld, þar sem málefni ungs fólks voru til umræðu. Aðeins tveir dagar eru nú til Alþingiskosninga.

Áslaug klæðist venjulega blárri dragt og fínni blússu á opinberum viðburðum, en það virðist sem hún hafi viljað ná til ungs fólks með því að velja klæðnað og vörumerki sem yngri kynslóðin þekkir.

Peysan er frá danska hönnunarmerkinu RotateVilhelm

Íþróttapeysa með íslenskar rætur

Peysan, er sem fyrr segir frá danska hönnunarmerkinu Rotate, er blá að lit með rauðu logoi. Hún kostar 160 evrur á vef Rotate, eða 23.278 krónur, miðað við núverandi gengi.

Skjáskot/rotatebirgerchristensen.com/

Rotate er vörumerki sem heyrir undir tískurisann Birger Christensen. 

Íslenska tískudrottningin Þóra Valdimarsdóttir er meðstofandi merkisins, sem er nú til sölu í 40 löndum. Merkið hefur notið mikilla vinsælda og var meðal annars tilnefnt sem vörumerki ársins af Forbes Magazine árið 2019, auk þess sem það hlaut tilnefningu frá tískusíðunni Lyst.com árið 2022.

Horfa má á Kappleikana í heild sinni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Kappleikar: „Ég er í alvörunni að reyna mitt besta“

Fjörugar kappræður fóru fram á Stöð 2 í gærkvöldi í Kappleikum þar sem málefni ungs fólks voru til umræðu. Þá var kannað hve listrænir frambjóðendur eru og fengu þeir það verkefni að mála hver aðra.

Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar

Fjörugar kappræður fóru fram á Stöð 2 í gærkvöldi í Kappleikum þar sem málefni ungs fólks voru til umræðu. Í einum lið var frambjóðendum boðið að taka afstöðu til hinna ýmsu málefna og reyndist það stundum þrautin þyngri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.