Ásýnd spillingar Jón Ármann Steinsson skrifar 28. nóvember 2024 16:21 Þetta Kynnisferða/ICELANDIA mál lítur ekki fallega út í baksýnisspeglinum. Kynnisferðir hafa gert það glimrandi gott í rúmlega tvö ár undir fölsku firmaheiti ICELANDIA. Fyrirtækið hefur fjárfest tugi milljóna til langframa í markaðsetningu erlendis undir þessu heiti og gengið vel þessi 2 ár. Þénustan er yfir 10 milljarðar í veltu og hagnaður ársins 1,3 milljarðar. Auk þess keypti Kynnisferðir hf 260 þús kr hlutafé af eigendum sínum fyrir 400 milljónir. Húrra fyrir þeim! En þegar betur er að gáð þá er sagan ekki svona slétt og felld. Fyrirtækið var á fleygiferð en með lík í skottinu. Stjórnendur Kynnisferða eru ekki vanir því að fá nei. Fyrst firmanafnið ICELANDIA var ekki falt fyrir slikk þá ákváðu þeir að breya um vettvang og ekki kaupa heldur eignast heitið með öðrum hætti. Ráðuneyti menningar, viðskipta og ferðamála LEX f.h. Kynnisferða lagði inn stjórnvaldskæru gegn firmaskrá skattsins sem heyrir undir viðskiptaráðuneytið. Svo gerist það án þess að ólöglærður maður eins og ég fái skilið af hverju – en allt í einu er ráðuneyti menningar orðið aðili að málinu. Þá kemur í ljós að til það er ekki verið að fjalla um eina stjórnvaldsákvörðun sem varðar firmaskrá heldur þrár ákvarðani í tveimur ráðuneytum. Leikflétta tveggja ráðuneyta Tímaröðin er mikilvæg: Viðskiptaráðuneytið fer með mál firmaskrár Skattsins og þar var ákveðið að hér skyldu áratuga gamlar vinnureglur um skráningu firmanafna ekki gilda lengur. Næst kom að ráðuneyti menningar og þar var einnig tekin óvenjuleg ákvörðun, eiginlega fáránlega óvenjulega. Ráðuneyti menningar ákvað að orðið ICELANDIA væri almennt íslenskt orð og orðið táknaði Ísland. Já, lestu þessa setningu aftur því þetta er í fyrsta skipti í Íslandssögunni sem svona nokkuð gerist. Ólíklegt er að svona gerist aftur á okkar líftíma. Fram að þessu hefði það verið illmögulegt að bjóða orðskrípinu ICELANDIA inn í orðaforða tungunnar án aðkomu Arnastofnunar og/eða íslenskrar málnefndar. Ég leyfi mér að fullyrða að þeir fræðimenn hefðu aldrei tekið þátt í plottinu atarna. Lokaákvörðunin var aftur viðskiptaráðuneytisins. Fyrst ICELANDIA var nú orið rammasta íslenska, - nei, ég meinti icelandianska, - þá var þetta almennt orð sem hver sem er gat skráð sem hluta af firmaheiti. Og það gerði Ferðaskrifstofa Kynnisferða samdægurs. Plottið hafði virkað en aukaverkanirnar voru ófyrirséðar en þær skiptu kærendur ekki máli fyrst firmanafnið var í höfn. Við hin sitjum uppi með nýtt landsheiti sem er assgoti góð auglýsing fyrir stærsta ferðaþjónustufyrirtæki Íslands. Notkunin er ófyrirséð. En ég sé fyrir mér skjaldarmerki Íslands á Alþingishúsinu með ICELANDIA sem hjáheiti í boði LEX og Kynnisferða.... Er þetta eðlileg stjórnsýsla? Nú veit ég ekkert hverjir komu að þessum þremur ákvörðunum ráðuneytanna. Svo ég er bara að giska en ásýndin er þessi; Vinnureglur tveggja stofnanna voru teknar úr sambandi. Aðstoðarmaður ráðherra kemur úr röðum stjórnenda Kynnisferða. Skrifstofustjóri ráðuneytisins hefur unnið í stjórnarráðinu í nærri 25 ár, þar af í fjármálaráðuneytinu í 10 ár. Hvernig hann kemur að málinu á vinnslustigi er óljóst en hann skrifar undir álitið. Fíllinn í herberginu Svo eru það hagsmunirnir því ef gjörningurinn á að uppfylla hugtakið spilling þá þarf einhver að auðgast og einhver að tapa líka. Fjölskylda forsætisráðherra er kjölfestueigendur í Kynnisferðum í gegnum Alfa ehf. Þar eiga allir fjölskyldumeðlimir jafnan hlut – nema einn einstaklingur, Bjarni Benedikdsson forsætisráðherra Icelandia á engan hlut en mamma hans á tvöfaldan hlut. Svo er það ásýnd landsins í augum útlendinga ef upp kæmu aðstæður þar sem stærsta ferðaþjónustufyrirtæki íslands yrði sakað um hegningarlagabrot t.d. í BNA. Þá væri Íslandsstofa líka í vandræðum því allt markaðsátak ICELANDIA var gert undir þeirra leiðsögn gegn greiðslu. Svona má lengi telja en… Hverjir kjósa að þegja? Þetta stjórnsýslumál ICELANDIA kom inn í umræðuna snemma í vikunnu. Til þessa hefur enginn úr pólitíkinni, stjórnsýslunni eða viðskiptageiranum sagt bofs um málið né útskýrt það gerendunum í vil. Kannski vilja þessir aðilar bíða þar til eftir kosningar til að vekja ekki upp óþarfa athygli á málinu? Það finnst mér skrítið ef þessi stjórnvaldsúrskurður se bara í góðu lagi og að allir eigi bara að vera kúl. Þögnin þar segir mér að málið sé rúmlega vandræðalegt, og að búast megi við sannfærandi humm og tja viðbrögðum við því að loknum kosningum. Höfundur er eigandi Icelandia ehf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ferðamennska á Íslandi Stjórnsýsla Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið D-vítamín mín besta forvörn Auður Elisabet Jóhannsdóttir Skoðun Við vitum alveg upphafið Guðný Níelsen Skoðun Ríkisstofnun rassskellt Björn Ólafsson Skoðun Leiðréttingin leiðrétt Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson Skoðun Varalitur á skattagrísinum Helgi Brynjarsson Skoðun Mun mannkynið lifa af gervigreindina? Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hugrekki getur af sér hugrekki Þorbjörg Þorvaldsdóttir Skoðun Hvað skiptir okkur mestu máli? Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Skoðun Mikilvægt skref til sáttar Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum hafið Guillaume Bazard skrifar Skoðun Deja Vu Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Mun mannkynið lifa af gervigreindina? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Ríkisstofnun rassskellt Björn Ólafsson skrifar Skoðun Gjaldfrjálsar skólamáltíðir – margþættur ávinningur Ludvig Guðmundsson,Guðrún E. Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Orkuöflun á eyjaklösum - Vestmannaeyjar og Orkneyjar Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hugrekki getur af sér hugrekki Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun D-vítamín mín besta forvörn Auður Elisabet Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Húmanisminn í kærleikanum og kærleikurinn í húmanismanum Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Helför gyðinga gegn íbúum Palestínu Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Leiðréttingin leiðrétt Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað skiptir okkur mestu máli? Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægt skref til sáttar Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Staðið með þjóðinni Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Við vitum alveg upphafið Guðný Níelsen skrifar Skoðun Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 3/3 Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varalitur á skattagrísinum Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Við eigum ekki efni á vonleysi né uppgjöf Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hingað og ekki lengra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Kafli eitt: Tómlæti Íslendinga Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Þegar líða fer að jólum Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Svansvottaðar íbúðir – fjárfesting í lífsgæðum Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun D-vítamín mín besta forvörn Auður Elisabet Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þetta má ekki gerast aftur! - Álag á útsvar Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Meistaragráða í lífsreynslu Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld, Óskar á heima hér! Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Dvel þú í draumahöll Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Níðingsverk Jón Daníelsson skrifar Skoðun Umhverfi, heilsa og skólamáltíðir Stefán Jón Hafstein skrifar Sjá meira
Skoðun Gjaldfrjálsar skólamáltíðir – margþættur ávinningur Ludvig Guðmundsson,Guðrún E. Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Húmanisminn í kærleikanum og kærleikurinn í húmanismanum Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar