Skoðun

Kæru kjó­sendur í Suðvestur­kjör­dæmi

Alma D. Möller skrifar

Við þökkum fyrir samtalið undanfarnar vikur og í raun síðastliðin tvö ár. Við frambjóðendur höfum hlustað og Samfylkingin hefur hlustað.

Málefni Samfylkingarinnar

Áherslur Samfylkingarinnar eru tilkomnar eftir samtal við almenning, fagfólk og félagasamtök um land allt. Almennt gildir að stefnumálin og markmiðin eru hugsuð til lengri tíma. Þar kveður við nýjan tón en langtímasýn hefur svo sannarlega skort í íslensk stjórnmál. Í ljósi fjölmargara áskornana framundan er brýnt að við verðum í ríkari mæli samfélag fyrirhyggju, forvarna og framsýni.

Þau málefni sem Samfylkingin setur á oddinn eru þau sömu og fólk nefndi nýlega í könnun Gallup; heilbrigðismál, húsnæðismál og efnahagsmál þar sem mestu skiptir að ná niður vöxum og verðbólgu og að efnahagslegur stöðugleiki komist á. Samfylkingin vill sömuleiðis byggja undir frekari verðmætasköpun í landinu en til þess þarf fjárfestingar í innviðum; í samgöngum og orku. Um stefnumál flokksins má lesa hér: Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum, Krafa um árangur í atvinnu og samgöngumálum og Framkvæmdaplan í húsnæðis- og kjaramálum.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi

Samfylkingin teflir fram fjölbreyttum hópi frambjóðenda með víðtæka þekkingu og reynslu og sem öll eru til þjónustu reiðubúin. Undirrituð, oddviti, er Kópavogsbúi og landlæknir sem brennur meðal annars fyrir betri heilbrigðisþjónustu, lýðheilsu og málefnum barna.

Í öðru sæti er Guðmundur Ari Sigurjónsson, ungur fjölskyldumaður, tómstunda- og félagsmálafræðingur og starfsmaður í æskulýðs- og forvarnarmálum síðastliðin 15 ár. Hann er öflugur bæjarfulltrúi af Seltjarnarnesi og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.

Þórunni Sveinbjarnardóttur úr Garðabæ þarf vart að kynna, hún er þrautreyndur þingmaður, fyrrum ráðherra og mikil baráttu- og hugsjónakona fyrir umhverfisvernd, jafnrétti og mannréttindum en hún skipar þriðja sætið.

Í fjórða sæti er Árni Rúnar Þorvaldsson, innfæddur Hafnfirðingur, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi sem þekkir vel málefni barna og ungmenna sem og velferðarmál almennt. Það er mikilvægt fyrir Hafnfirðinga að tryggja að Árni nái kjöri.

Fimmta sætið skipar svo Jóna Þórey Pétursdóttir úr Kópavogi, ungur lögmaður sem brennur fyrir málefnum fjölskyldna, ekki síst húsnæðismálum og fæðingarorlofsmálum en einnig mannréttindum og loftslagsmálum.

Tryggjum breytingar og nýtt upphaf

Formaður flokksins, Kristrún Frostadóttir, er sá stjórnmálaleiðtogi sem flestir landsmanna treysta til að leiða forsætisráðuneytið og reyndar líka fjármálaráðuneytið. Það er brýnt að Samfylkingin verði stæsti flokkurinn að loknum kosningum, leiði stjórnarmyndun og að Kristrún verði verkstjórinn í næstu ríkisstjórn. Þannig tryggjum við að farið verði í þau þjóðþrifamál sem Samfylkingin hefur boðað og þjóðin vill, enda flokkurinn vel undirbúinn og fólk tilbúið til verka.

Kæru kjósendur, Samfylkingin gætir engra sérhagsmuna, einungis almannahags. Tryggjum breytingar og nýtt upphaf, kjósum Samfylkinguna!

Höfundur er landlæknir og oddviti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×