Lífið samstarf

Sparitímabilið er að hefjast, er fata­skápurinn klár?

Boozt

Skemmtilegasti tími ársins er framundan, veislur og viðburðir, jólaboð og gamlárspartý. Nú er tilvalið að endurnýja sparidressið og á Boozt er hægt að finna föt fyrir hvaða tilefni sem er.

Matarboð með vinum

Skemmtileg kvöldstund með góðum vinum kallar á þægilegan klæðnað. Prjónaflíkur, síðbuxur og fallegir toppar með bylgjandi ermum slá alltaf í gegn.

Boozt mælir með síðkjólum og samfestingum í kvöldverðarboðin og þá eru há stígvél hentug í desemberkuldanum.

Eldrauð aðventa

Rauði liturinn á við alla aðventuna, ekki bara rétt yfir jóladagana. Sniðugt að koma sér upp fallegu safni af rauðum flíkum í skápnum til að ganga í allan desember. 

Rauður þarf samt ekki að vera allsráðandi, grænn og blár eru líka jólalegir litir og viðeigandi á þessum tíma, hvítur og auðvitað hinn klassíski svarti litur. 

Rauða spariskó ásamt rauðri handtösku er til dæmis gott að eiga í skápnum til að para með þessum litum. 

Formlegustu viðburðirnir í svörtu

Það er spennandi að fá boð á háklassa viðburð þar sem farið er fram á formlegan klæðnað. Það þarf þó ekki endilega að þýða svart frá toppi til táar en samt, svart getur verið svo glæsilegt og gaman að sveifla sér í skósíðan kjól, jafnvel með pífum eða glimmer. Satínskór með slaufu og handtaska með karakter fullkomna útlitið. 

Gamlárspartýið kallar á nýtt upphaf

Hví ekki að taka á móti nýju ári með nýjum stíl? Úrvalið á Boozt á sér nánast engin takmörk og hægt að finna trylltan glimmerfatnað og silfurskó í stíl, hvíta kjóla með pallíettum eða svarta með kögri, allt eftir því hvaða stemmningu við erum að sækjast eftir.

Svörtudagar standa nú sem hæst á Boozt og því frábært tækifæri til að gera góð kaup.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.