Á sér langra sögu eldfimra ummæla Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 30. nóvember 2024 10:44 Eldur Smári Kristinsson skipar 1. sæti á lista Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Oddviti Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem kærður hefur verið fyrir ummæli gagnvart trans fólki á sér langa sögu slíkra ummæla. Þá hafa mótframbjóðendur hans orðið fyrir barðinu á ummælum hans.
Greint var frá því í gær að Samtökin '78 hefðu lagt fram kæru á hendur Eldi S. Kristinssyni oddvita Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna sjö ummæla sem hann hefur lagt fram opinberlega í garð trans fólks. Í skoðanagrein sem Eldur birti á Vísi í gær sagði hann kæru samtakanna pólitískar ofsóknir. Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna '78 sagði ummælin óverjanleg og þau vegi að öryggi starfsfólki þeirra. „Hann fullyrðir í einum ummælum að Samtökin '78 séu að grooma eða tæla börn. Í öðrum ummælum kallar hann trans konur barnaníðinga.“ Ummælin sem Eldur er kærður fyrir lét hann falla á eins og hálfs árs tímabili, meðal annars í Morgunblaðið og á samfélagsmiðlana Facebook og X. „Ég meina, þessi drusla! Að nota smábörn til að fullnægja augljósum afbrigðilegum kynlífsblætum í mönnum sem kallast b-a-r-n-a-g-i-r-n-d!“ skrifaði hann á X árið 2023. Fleiri ummæli Elds sem kærð hafa veirð til lögreglu má nálgast í fréttinni hér að ofan. Óskaði borgarstjórn kynfæravarta Ummælin sjö sem Eldur er kærður fyrir eru þó ekki þau einu sem hann hefur sett fram um trans fólk, en Facebook síðurnar Samtökin 22 - Hagsmunasamtök samkynhneigðra og persónuleg Facebook síða Elds eru hlaðnar áróðri sem í flestum tilvikum felur í sér vanþóknun gagnvart trans fólki. Síðan bar áður nafnið Eldur Deville, en nafni hennar hefur verið breytt. Þá virðist hann að auki óánægður með sitjandi borgarstjórn en í lok árs 2022 fór hann heldur ófögrum orðum um borgarstjórnina. Þetta sagði Eldur um borgarstjórnina fyrir tæpum tveimur árum. Facebook Í færslu sem Eldur birti þann 13. apríl kemst hann svo að orði að nokkrar íslenskar trans konur séu karlar að þykjast vera konur og séu að fronta „innrás á kvennarými“. „Hvernig stendur á því að körlum er svona mikið í mun að bera sig fyrir framan kvenfólk og stúlkur?“ Færslur þar sem Eldur sakar trans fólk um barnagirnd eru ófáar. Færslur sem innihalda orðræðu um að „vernda þurfi börnin“ frá trans áróðri. „Við byrjum árið á tveimur nýjum orðum. Hommaherma: kvenmaður sem skilgreinir sig sem trans og homma. Látbragðslesbía: karlmaður sem skilgreinir sig sem trans og lesbíu. Nú er það okkar að festa þessi nýyrði í sessi,“ segir Eldur í einni færslu sem fréttastofa á skjáskot af. Eftirfarandi stendur á ensku í færslu Elds þar sem hann hæðist að kynsegin fólki, sem notast við fornafnið hán. „Þau mega nauðga konunum okkar en við munum aldrei ruglast á fornöfnunum þeirra.“ Hér gefur að líta færslur sem birtar hafa verið á Facebook síðu Samtakanna 22 annars vegar, sem er í umsjón Elds, og persónulegri Facebook síðu hans.Facebook „Trans lesbíur eru gagnkynhneigðir karlmenn,“ segir á ensku í færslu á síðum Samtakanna 22. Margar sambærilegar færslur er að finna á þeirri síðu. Eldur er sem fyrr segir á lista Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Samkvæmt könnun Maskínu síðan í gær mælist flokkurinn með eins prósents fylgi.
Kosningapróf - Kjóstu rétt Taka prófið Lýðræðisflokkurinn Alþingiskosningar 2024 Hinsegin Málefni trans fólks Tengdar fréttir Ugla og Eldur mætast í Norðvestur Áhugaverður slagur er að teiknast upp í Norðvesturkjördæmi, þar sem oddviti eins flokks er trans kona og oddviti annars er yfirlýstur baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks, en hefur mótmælt réttindabaráttu trans fólks ötullega. 24. október 2024 10:48 Mest lesið „Ég get ekki hugsað mér að fleiri börn lendi í honum“ Innlent Kosningavaktin: Landsmenn kjósa sér nýtt þing Innlent Á sér langa sögu eldfimra ummæla Innlent Sigurður beðinn um að fjarlægja Framsóknarnælu Innlent Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Erlent Viðvaranir komnar í gildi og orðið ófært sums staðar Veður Mestu flokkaflakkararnir Innlent Ölfusá orðin bakkafull af ís Innlent Gekk berserksgang í verslunarmiðstöð í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna rútuslyss Um þriðjungur hefur kosið í flestum kjördæmum „Nú þarf maður bara að treysta þjóðinni“ „Förum ekki að stefna öryggi fólks í hættu“ Gríðarlegur kraftur í sjálfstæðisvélinni „En ég heyri alveg gríðarlegan stuðning víða“ Hröð barátta og skortur á dýpt Samtöl við kjósendur standa upp úr Sigurður beðinn um að fjarlægja Framsóknarnælu Kjörsókn betri fyrir austan en menn þorðu að vona Tekist að opna alla kjörstaði í Norðausturkjördæmi „Ég get ekki hugsað mér að fleiri börn lendi í honum“ Heyrir fleiri segja þörf á VG á þingi Heldur aftur af sér svo hún gangi ekki um syngjandi Ölfusá orðin bakkafull af ís Á sér langa sögu eldfimra ummæla Auðvelt val þótt hann geti ekki kosið sjálfan sig „Við verðum að fá öflugan vinstri flokk“ Gekk berserksgang í verslunarmiðstöð í Hafnarfirði Kosningavaktin: Landsmenn kjósa sér nýtt þing Mestu flokkaflakkararnir Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Sjá meira
Ugla og Eldur mætast í Norðvestur Áhugaverður slagur er að teiknast upp í Norðvesturkjördæmi, þar sem oddviti eins flokks er trans kona og oddviti annars er yfirlýstur baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks, en hefur mótmælt réttindabaráttu trans fólks ötullega. 24. október 2024 10:48