Innlent

31 snýr ekki aftur á þing

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þessir þingmenn eiga ekki afturkvæmt, af ýmsum ástæðum.
Þessir þingmenn eiga ekki afturkvæmt, af ýmsum ástæðum.

Af 63 þingmönnum síðasta kjörtímabils hverfur 31 á braut þegar nýtt þing tekur til starfa.

Sumir ákváðu að sækjast ekki eftir endurkjöri en aðrir náðu ekki inn í þingkosningunum í gær.

Þingflokkar Vinstri grænna og Pírata detta út eins og þeir leggja sig, þrettán þingmenn alls. Flokkarnir náðu engum þingmönnum inn.

Framsóknarflokkurinn tapaði átta þingmönnum og meðal þeirra sem eiga ekki afturkvæmt þrátt fyrir að hafa verið í framboði eru þrír ráðherrar. Þetta eru Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, er meðal Sjálfstæðismanna sem eiga ekki afturkvæmt og þá náði Jakob Frímann Magnússon ekki aftur inn á þing, en hann gekk í raðir Miðflokksins eftir að hafa verið látinn taka poka sinn úr Flokki fólksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×