Handbolti

„Förum léttar inn í þennan leik“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Rut Arnfjörð Jónsdóttir ; Rut Jónsdóttir
Rut Arnfjörð Jónsdóttir ; Rut Jónsdóttir Vísir/Einar

Rut Jónsdóttir naut sín vel í sigri Íslands á Úkraínu og líður almennt vel á EM í Innsbruck. Spennan er mikil fyrir leik kvöldsins við Þýskaland.

„Þetta er mjög stórt. Það hefur verið löng bið eftir þessu og við erum rosalega stoltar og glaðar með þennan sigur,“ segir Rut um sigurinn í fyrrakvöld.

Eftir að hafa setið á bekknum í fyrsta leik átti Rut fína innkomu í íslenska liðið og raðaði inn stoðsendingum í fyrri hálfleik.

„Mér leið rosalega vel. Stelpurnar voru að standa sig vel svo það var auðvelt að detta inn í þetta. Maður hefur spilað með mörgum af þessum stelpum og það var góður fílingur í þessu,“ segir Rut.

Hún missti af HM í fyrra vegna barnsburðar og er nú mætt á stórmót í fyrsta sinn í rúman áratug.

„Það er rosalega flott umgjörð og mikið auka sem maður er ekki vanur. Þetta hefur verið rosalega vel heppnað hjá öllum og gaman fyrir stelpurnar að vera í þessu. Þetta er vel flottur og samstilltur hópur og það er gaman að upplifa þetta saman,“ segir Rut sem á erfitt með að bera þetta saman við fyrri mót en þykir gaman að fylgjast með þeim sem yngri eru á þessu stóra sviði.

„Það er svo langt síðan að ég man ekki alveg allt. Mér hefur alltaf liðið vel í landsliðinu en þetta er extra sætt því þetta er svo samrýmdur hópur, eins og ég segi, það hefur verið mikil uppbygging. Mér finnst líka gaman að fylgjast með þessum ungu flottu stelpum á þessu sviði, þær eru standa sig svo vel.“

Þýskaland er mótherji dagsins í hreinum úrslitaleik. Sigurliðið fer í milliriðil og tapliðið heim.

„Mér finnst mjög gaman að við séum að fara inn í þennan leik með möguleika. Við gerum okkur vissulega grein fyrir því að þetta er mjög sterkur andstæðingur. En það er ekkert vitað fyrir fram. Við förum léttar inn í þennan leik og gerum okkar allra besta,“ segir Rut.

Klippa: Rut klár í úrslitaleik

Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.

Fram undan hjá íslenska liðinu er hreinn úrslitaleikur við Þýskaland um það hvort liðanna fer áfram í milliriðil í Vínarborg. Leikurinn er klukkan 19:30 í kvöld og verður íslenska liðinu fylgt vel eftir á Vísi fram að leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×