Handbolti

Frammi­staðan á EM skilaði stelpunum í efri styrkleikaflokk í fyrsta sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Perla Ruth Albertsdóttir fagnar einu marka sinna á EM en hún varð markahæsti leikmaður íslenska liðsins á mótinu með 21 mark í þremur leikjum.
Perla Ruth Albertsdóttir fagnar einu marka sinna á EM en hún varð markahæsti leikmaður íslenska liðsins á mótinu með 21 mark í þremur leikjum. Getty/Henk Seppen

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta endaði í sextánda sæti á EM og á fyrir vikið meiri möguleika á því að komast inn á þriðja stórmótið sitt í röð.

Ísland verður nefnilega í efri styrkleikaflokki þegar dregið verið í umspil um sæti á næsta HM en þar munu 22 þjóðir keppa um ellefu laus sæti á næsta heimsmeistaramóti.

Íslensku stelpurnar losna þar með við það að spila við bestu þjóðirnar í Evrópu sem eru í efri styrkleikaflokknum með Íslandi.

Þessu náðu stelpurnar okkar með því að tryggja sér sextánda sætið á Evrópumótinu en liðið lauk keppni í gær. Stelpurnar komust ekki í milliriðil en sögulegi sigurinn á Úkraínu vóg þungt þegar upp var staðið.

Það eru því auknar líkur á því að íslenska liðinu takist að tryggja sér sæti á næsta heimsmeistaramóti sem fer fram í Þýskalandi og Hollandi frá 27. nóvember til 14. desember 2025.

Það mun koma í ljós sunnudaginn 15. desember næstkomandi hver mótherji íslenska liðsins verður en þá verður dregið í umspilið í Vínarborg.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Ísland á sæti í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í umspilsleiki HM.  Færeyingar eru í efri flokknum en þeir hreppa síðasta sætið af efstu ellefu. Færeysku stelpurnar enduðu í sautjánda sæti á EM sem var fyrsta stórmót þeirra frá upphafi.

Ísland er öruggt með að mæta ekki þeim þjóðum sem komust í milliriðlana á Evrópumótinu. Þær þjóðir sem voru næstar því að komast í efri styrkleikaflokkinn voru Norður-Makedónía, Króatía, Tyrkland, Serbía, Portúgal, Úkraína og Slóvakía en ein af þeim verður mögulega mótherji íslenska liðsins í vor.  Ísrael, Kósóvó, Litháen og Ítalía eru hinar þjóðirnar sem íslenska liðið getur mætt.

Íslenska liðið var með á síðasta heimsmeistaramóti í fyrra, þær voru svo með á Evrópumótinu í ár og gæti því farið inn á sitt þriðja stórmót í röð klári stelpurnar þessa mikilvægu umspilsleiki.


Tengdar fréttir

Skýrsla Vals: Bölvaður Berlínarmúrinn

Íslenska kvennalandsliðið hefur lokið leik á EM eftir að hafa lent á þýskum varnarmúr í kvöld. Kaflaskiptu móti lokið en vegferðin fræga heldur áfram.

„Fyrir mig var þetta gríðar­lega erfitt“

Líkt og aðrir leikmenn íslenska landsliðsins var Steinunn Björnsdóttir svekkt með leik liðsins í kvöld gegn sterku liði Þýskalands. Tapaðist leikurinn með ellefu mörkum þar sem Steinunn fékk úr litlu úr að moða á línunni.

Elín Rósa: Við náðum okkar helsta markmiði

Elín Rósa Magnúsdóttir var að vonum svekkt eftir að íslenska landsliðið féll úr leik í kvöld gegn Þýskalandi. Lokatölur 19-30, en Elín Rósa lítur þó björtum augum á mótið í heild og á framtíð landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×