Stephen Bunting hefur spilað vel á heimsmeistaramótinu í pílukasti en þessi viðkunnalegi Liverpoolbúi hefur heillað marga með spilamennsku sinni. Hann mætti hinum yfirlýsingaglaða Peter Wright sem sló meðal annars út heimsmeistarann Luke Humphries á leið sinni í 8-manna úrslit.
Butning hóf leikinn af miklum krafti. Hann vann sex af fyrstu átta leggjum viðureignarinnar og komst í 2-0 í settum. Þriðja settið var æsispennandi en Bunting vann það einnig og hann valtaði yfir Wright í fjórða setti og vann örugglega.
Hann var því kominn í 4-0 í settum og aðeins einu setti frá því að sópa Peter Wright úr leik. Þá vaknaði hins vegar Wright. Hann vann næstu tvö sett en lenti 2-0 undir í sjöunda settinu.
WONDERFUL FROM WRIGHT!
— PDC Darts (@OfficialPDC) January 1, 2025
WHAT A FINISH!
Peter Wright with a huge celebration after following up a 180 with a brilliant 133 finish to reduce the arrears to 4-2!
📺 https://t.co/pIQvhqYxEj #WCDarts | QFs pic.twitter.com/G7UyVrZ9It
Þá gat hann komið sér aftur inn í leikinn en klikkaði hins vegar í tvígang þegar hann reyndi við tvöfaldan tuttugu og Butning nýtti sér það. Hann vann settið 3-0 og leikinn 5-2. Bunting er þar með kominn í undanúrslit í annað sinn á ferlinum en hann gerði slíkt hið sama árið 2021.
BUNTING IS INTO THE SEMI-FINALS!!
— PDC Darts (@OfficialPDC) January 1, 2025
Stephen Bunting powers in the Semi-Finals of the 2024/25 Paddy Power World Darts Championship, beating Peter Wright 5-2.
A second career World Championship Semi-Final for Bunting... Can he go all the way?
📺 https://t.co/ItCofNEHJs#WCDarts pic.twitter.com/oI3QbPpjG2
Í seinni leik kvöldsins var komið að stórstjörnunni Luke Littler en hann mætti Nathan Aspinall. Svipað var uppi á teningunum og í fyrri viðureign kvöldsins. Luke Littler virtist ætla að fara auðveldlega í gegnum Aspinall í upphafi en í stöðunni 2-0 náði Aspinall nokkuð óvænt að vinna þriðja settið og minnka muninn.
Í fjórða settinu fór Aspinall illa með tækifæri til að jafna metin í 2-2 en virtist á köflum eiga erfitt með að halda einbeitingu og það þýðir ekki gegn Little. Little vann næstu tvö sett og komst í 4-1 en Aspinall minnkaði muninn í 4-2.
LITTLER IS ONE AWAY!!
— PDC Darts (@OfficialPDC) January 1, 2025
Luke Littler is on the brink of another World Championship Semi-Final...
He clinches the fifth set and needs just three legs to secure his last four spot.
📺 https://t.co/ItCofNEHJs#WCDarts pic.twitter.com/vky26ouZ54
Í sjöunda settinu var Little hins vegar kominn með nóg, kláraði settið örugglega og leikinn 5-2. Littler er þar með kominn í undanúrslit þar sem hann mætir Stephen Bunting. Littler spilaði frábærlega í kvöld og í tíu skipti þurfti hann tólf pílur eða minna til að vinna legg.