Innlent

Titringur á Al­þingi

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Inga Sæland formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra er ósátt við titring í fundarherbergi í nýrri skrifstofubyggingu Alþingis.
Inga Sæland formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra er ósátt við titring í fundarherbergi í nýrri skrifstofubyggingu Alþingis. Vísir

Allt leikur á reiðisskjálfi með reglulegu millibili í fundarherbergi á fimmtu hæð í nýrri skrifstofubyggingu Alþingis sögn formanns Flokks fólksins sem hefur aldrei upplifað annað eins. Þetta sé þó aðeins einn af nokkrum göllum í húsnæðinu. Brýnt sé að ráðast í úrbætur.

Inga Sæland formaður Flokks fólksins vakti athygli í áramótagrein í Morgunblaðinu að fundarherbergið Arnarfell á fimmtu hæð í nýrri skrifstofubyggingu Alþingis leiki á reiðiskjálfi með reglulegu millibili. Hún bendir þar á að  titringurinn hafi valdið töluverðum áhyggjum þegar Volodimír Selenskí Úkraínuforseti heimsótti Ísland og fundaði með utanríkismálanefnd þingsins í sama fundarherbergi. 

Inga segir mikilvægt að bregðast við. 

„Á fimmtán mínútna fresti keyrir strætó  yfir  hraðahindrun og þá verður jarðskjálfti upp á tvo komma fimm á Richter í fundarherberginu. Þetta gerist oftar ef aðrir stórir bílar keyra líka þar yfir. Þetta á ekki að vera svona. Ég hef aldrei upplifað annað eins,“ segir Inga.

Með reglulegu millibili finnst titringur í fundarherberginu Arnarfelli sem staðsett er á fimmtu hæð í Smiðju nýju skrifstofuhúsnæði Alþingis.Vísir/Sigurjón

Sökudólgurinn í  Vonarstræti

Hraðahindrunin sem um ræðir liggur á Vonarstræti milli Ráðhúss Reykjavíkur og Smiðjunnar. Þegar stór ökutæki keyra yfir hana virðist það valda titringi í burðarvirki Smiðjunnar í fundarherberginu Arnarfelli eins og áður hefur verið lýst. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu frá Framkvæmdasýslu ríkisins er verið að kanna möguleika á að fjarlægja hraðahindrunin í samráði við borgina.

Hraðahindrunin sem veldur titringi í Arnarfelli þegar stór ökutæki keyra yfir hana.Vísir/Sigurjón

Erfitt að tala saman í matsalnum

Inga er ekki alveg nóg sátt við húsnæðið sem var að fullu tekið í gagnið á fyrrihluta síðasta árs. Þar eru nefndaherbergi Alþingis, skrifstofur þingmanna og starfsmanna og mötuneyti.  Hönn­un­in hússins hefur verið sögð margbrotin þar sem hugsað hafi verið út í minnstu smáatriði.  

„ Ég tel að þetta sé galli í húsnæðinu eins og svo margt annað þarna. Það er til að mynda ill mögulegt að tala saman í matsalnum í húsinu. Það er ýmislegt sem hefði mátt betur fara,“ segir Inga. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem nýtt skrifstofuhús Alþingis kemst í fréttirnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er ósáttur með húsnæðið en hann fór í skoðunarferð með fréttamanni um húsnæðið á síðasta ári: 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×