Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. janúar 2025 18:12 Dómurinn var kveðinn upp í gær. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Sigurjón Ólafsson, karlmann á sextugsaldri, í átta ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað andlegra fatlaðri konu ítrekað og látið aðra menn sem hann var í samskiptum við nauðga henni. Hann var yfirmaður hennar og neyddi son hennar til að fylgjast með kynferðislegum athöfnum þeirra.
Dómurinn var kveðinn upp í gær en þar kemur fram að Sigurjón hafi ítrekað nauðgað konunni á árunum 2016 til 2020 og látið aðra menn hafa kynferðismök við hana. Hann braut einnig á syni hennar sem þá var á táningsaldri og kærustu hans. Fram kemur að Sigurjón hafi notfært sér það að konan hafi ekki getað spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar og beitt hana ólögmætri nauðung. Þá hafi hann misnotaði freklega þá aðstöðu sína að konan var honum háð í atvinnu sinni en hann hafi verið verslunarstjóri í versluninni þar sem konan starfaði við afgreiðslu. Leiðbeindi fötluðum syninum um hvernig stunda ætti kynlíf Líkt og greint var frá þegar Sigurjón var ákærður kom hann að jafnaði nokkrum sinnum í mánuði á fyrrgreindu tímabili á heimili konunnar og hafði við hana samræði. Hann lét hana líka hafa samræði við aðra menn sem menn átti í samskiptum við á samfélagsmiðlum. Á 2016 til 2020 áreitti hann son konunnar, þá á unglingsaldri, kynferðislega með því að hafa ítrekað spurt hann um kynlíf hans og gefið honum leiðbeiningar um það hvernig hann ætti að stunda kynlíf. Hann hafi notfært sér að sonurinn gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar. Einnig beindust brotin að unnustu sonarins en 28. desember 2020, fór Sigurjón inn í herbergi sonarins þar sem þau unnustan voru að stunda kynlíf í rúmi sonarins á bak við luktar dyr og farið upp að konunni þar sem hún lá nakin í rúminu og fært hendi sína mjög nálægt kynfærum hennar og gefið syninum leiðbeiningar um það hvernig hann ætti að veita konunni munnmök. Hann hafi vitað að hún væri „einföld“ Sigurjón neitaði sök og bar fyrir sig að konan hafi verið bæði sjálfráða og fjárráða og að hömlun hennar hafi hvorki verið áberandi né heldur á því stig að hún hafi ekki verið bær um að taka ákvarðanir um eigin mál, þar á meðal um eigið kynfrelsi. Fyrir dómi sagðist hann hafa vitað að hún væri „einföld“ en að hann hafi þó á engan hátt nýtt sér það í kynferðislegum tilgangi. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi og vegna alvarleika brotanna er refsingin óskilorðsbundin. Einnig var hann dæmdur til að greiða konunni fimm milljónir, syni hennar 1,2 milljónir og kærustu sonarins hálfa milljón króna í miskabætur. Þar að auki er honum gert að greiða tæplega 8,5 milljónir króna í sakarkostnað.
Dómsmál Reykjavík Akranes Mest lesið Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Erlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Innlent Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Innlent Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Innlent Ekkert verður af kaupunum á Krafti Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Innlent Fleiri fréttir 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Hörmungar í Los Angeles og myrkur í Smyrilshlíð Nýr leikskóli rís í Elliðaárdal Slæm meðferð Bandaríkjanna á frumbyggjum vekur ótta á Grænlandi Rektor MH tekur við skólamálum borgarinnar Sjá meira