Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að samþykkt hafi verið í borgarráði í dag að ganga til viðræðna við fasteignafélagið Laka fasteignir ehf. um byggingu leikskólans.
Reykjavíkurborg auglýsti í október síðastliðnum eftir húsnæði og lóð fyrir leikskóla, 800 til 2000 fermetra húsnæði ásamt 1400 til 1800 fermetra aðliggjandi útileiksvæði. Fasteignafélagið Laki fasteignir ehf. festi nýlega kaup á Rafstöðvarvegi 7 með kaupum á félaginu Rafkletti ehf. en Reykjavíkurborg hefur leigt húsnæðið undanfarin ár undir starfsemi Hins hússins.
Rafklettur ehf. er jafnframt eigandi byggingarréttar upp á rúmlega 1000 fermetra við hliðina á Rafstöðvarvegi 7. Í innsendu erindi Laka fasteigna til borgarinnar lýsir félagið sig reiðubúið að byggja leikskóla á þessari lóð, sem geti verið tilbúinn til notkunar innan tólf mánaða frá undirritun leigusamnings. Hitt húsið verður áfram á sínum stað.
„Til að tryggja afhendingartíma leikskólans yrði notuð sama byggingaraðferð og notuð var við stækkun Hótels Akureyrar á síðasta ári. Þá var gert samkomulag við Qmodular í Póllandi og voru starfsmenn Laka ráðgjafar í ferlinu. Hótelið var byggt á fimm mánuðum með stálgrindarfyrirkomulagi, siglt með það til Akureyrar og reist þar á fimm dögum. Lokafrágangur tók síðan tvo mánuði eftir að byggingin var reist. Laki fasteignir er í lokahönnun á verkefni á Höfn í Hornafirði þar sem 70 herbergja hótelviðbygging verður gerð með sama hætti,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.