Geimförin voru send af stað með Falcon 9 eldflaug SpaceX, sem flaug svo aftur til jarðar og lenti á drónaskipinu Just read the instructions.
A Falcon rocket lifts off from pad 39A in Florida for the 100th time! pic.twitter.com/aIQXrQFEux
— SpaceX (@SpaceX) January 15, 2025
Prufukeyra tækni fyrir mannaðar ferðir
Annað lendingarfarið er á vegum bandaríska fyrirtækisins Firefly Aerospace og heitir Blue Ghost. Því er ætlað að lenda á yfirborði tunglsins 2. mars. Lendingarstaðurinn er nærri fjallinu Mons Latreille, sem finna má á basaltsléttunni Mare Crisium.
Fyrst mun það þó vera nærri því mánuð á braut um jörðina, áður en það fer af stað til tunglsins. Þar mun það einnig vera í nokkurn tíma á sporbraut áður en það að á lenda á yfirborðinu.
Blue Ghost á að nota til rannsókna á tunglinu og til að prufukeyra tækni fyrir væntanlegar mannaðar geimferðir til tunglsins.
Deployment of @Firefly_Space’s Blue Ghost lunar lander confirmed pic.twitter.com/6HpA2Xl7cM
— SpaceX (@SpaceX) January 15, 2025
Í yfirlýsingu á vef Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) segir að geimfarið muni bora í yfirborð tunglsins og vera notað til að kanna tækni varðandi staðsetningarbúnað á tunglinu, geislunarþolinn tölvubúnað og leiðir til að forðast uppsöfnun tunglryks.
Tilkynnt var desember að annað geimskot Artemis-áætlunarinnar eigi að fara fram í apríl 2026. Þá á að senda hóp geimfara á braut um tunglið en til stendur að lenda geimförum á tunglinu um mitt ár 2027.
Sjá einnig: Setja stefnuna á tunglið í apríl 2026
Einnig er vonast til þess að gögn frá geimfarinu geti svarað spurningum um áhrif geimveðurs á aðstæður hér á jörðinni.
Með lítið hús til tunglsins
Hitt geimfarið er á vegum japanska fyrirtækisins ispace og ber nafnið Resilience. Það mun vera nokkuð lengur á leiðinni til tunglsins og á að lenda þar eftir fjóra til fimm mánuði.
Um borð í Resilience er lítil tungljeppi sem kallast Tenacious en hann á að nota til að safna tunglryki. Geimfarið ber einnig ýmsan vísindabúnað.
Deployment of the @ispace_inc RESILIENCE lunar lander confirmed pic.twitter.com/ep3N05MkTm
— SpaceX (@SpaceX) January 15, 2025
Þetta verður í annað sinn sem starfsmenn ispace reyna að lenda geimfari á yfirborði tunglsins. Það reyndu þeir síðast í apríl 2023 en hugbúnaðargalli leiddi til þess að lendingarfarið slökkti á hreyflum sínum hátt yfir yfirborði tunglsins og brotlenti því með tilheyrandi látum.
Vísindabúnaðurinn um borð í Resilience er samkvæmt frétt SpaceNews frá japönskum fyrirtækjum og háskóla í Taívan. Þá er einnig um borð oggulítið hús sem hannað var af Mikael Genberg, sænskum listamanni, og ber nafnið Moonhouse.