Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Jakob Bjarnar skrifar 15. janúar 2025 13:49 Gísli Örn Garðarsson í hlutverki sem Hallgrímur segir að eigi líkast til að túlka Helga Skúlason, föður hans. Hallgrímur segir Vesturport fara afar frjálslega með hlut Helga hjá Leikfélaginu í þáttunum um Vigdísi. Í raun sé brugðið upp skrumskældri mynd af Helga í þáttunum og honum er lýst sem þröngsýnum manni sem hafi ekki hugnast nýstárlegt leikverk Sartres Lokaðar dyr undir stjórn Vigdísar. Hallgrímur Helgi Helgason, þýðandi, handritahöfundur og sonur Helga Skúlasonar leikara og leikstjóra, segir furðulegu ljósi brugðið upp af föður sínum í annars rómuðum þáttum um Vigdísi Finnbogadóttur.
Vigdísarþættir Vesturports, sem eru á dagskrá Ríkissjónvarpsins, hafa nánast undantekningarlaust verið lofaðir til skýjanna. Hallgrímur tekur öðrum þræði undir það en í grein á Vísi segist hann ekki geta setið undir því athugasemdalaust hvernig mynd er dregin upp af föður hans Helga Skúlasyni. „Í þættinum bregður fyrir persónu sem ekki verður skilið öðruvísi en eigi að vera Helgi Skúlason. Samhengi persónunnar í þættinum er hins vegar ankannalegt svo ekki sé meira sagt. Honum er lýst sem þröngsýnum manni sem hafi ekki hugnast nýstárlegt leikverk Sartres Lokaðar dyr undir stjórn Vigdísar.“ Alger skrumskæling á hlut Helga Hallgrímur segir að sér sé það fullljóst að handritshöfundar þurfi að svindla á sagnfræðinni en niðurstaðan sé ósmekkleg og í raun „bara alger skrumskæling á hlut Helga í starfi Leikfélagsins.“ Hallgrímur rekur að því hafi farið fjarri að Helga hafi verið uppsigað við nýjustu leikhússtrauma sem bárust hingað til lands úr Evrópu. Hann setti til að mynda upp hjá Leikfélaginu tvo einþáttunga eftir absúrdistann Ionesco árið 1961. Og fljótlega eftir að hann kom til Leikfélagsins hafi hann sest í stjórn þess sem réði Svein Einarsson sem fyrsta leikhússtjóra félagsins 1963. Næstu árin vann Leikfélagið svo hvern sigurinn á fætur öðrum þar sem Helgi var ýmist leikari eða leikstjóri. „Og Helgi kom sem sagt hvergi að sýningu leikhópsins Grímu á Lokuðum dyrum Sartre eins og sýnt er í þáttunum. Það verk var sýnt í Tjarnarbíói og tengdist ekkert Leikfélagi Reykjavikur,“ segir Hallgrímur. Ástæða brotthvarfs ekki framúrstefnulegt verkefnaval Vigdísar Þá víkur Hallgrímur að því að furðulegt megi heita að búa til þá fléttu að „Vigdís hafi fundið upp á því „snjallræði“ að bjóða Þjóðleikhúsinu starfskrafta Helga til að losna við hann.“ Staðreyndin sé sú að þau Helgi og Helga sögðu bæði starfi sínu lausu hjá Leikfélaginu sumarið 1976 án þess að vera komin í annað starf. „Ástæðan var sannarlega ekki sú að þeim þætti verkefnaval félagsins undir stjórn Vigdísar of framúrstefnulegt, heldur fannst þeim félagið hafa horfið um of frá listrænum metnaði og snúast fullmikið um léttmeti og farsa (sem var meðal annars auðvitað til styrktar húsbyggingarsjóði félagsins).“ Uppfært 15:40 Rakel Garðarsdóttir, framleiðandi þáttanna, hafnar því alfarið að umrædd persóna, sem heitir Elmar í þáttunum, sé byggð á Helga Skúlasyni.
Leikhús Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Vigdís Finnbogadóttir Mest lesið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Lífið Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Lífið Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Lífið Greiddi niður 16 milljón króna skuldir á tæpu ári Lífið Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Lífið Stóra stundin runnin upp hjá Sigrúnu Ósk Lífið Tíu eftirréttir sem tilvalið er að prófa um páskana Lífið Kastaði Pétri og Sveppa fram og til baka í indverskri glímu Lífið Matargleði Evu: Dýrindis páskalamb Matur Fleiri fréttir Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak „Ég verð dauður áður en kvikmyndahúsin loka“ Lovísa Ósk nýr listdansstjóri Íslenska dansflokksins Vonar að tæknin taki aldrei yfir innsæi og ástríðu Tekur við sem verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu Íslensku myndlistarverðlaunin: Pétur, Helena og Erró heiðruð „List er okkar eina von“ Skálað fyrir skíthræddri Unni Sjóðheitir listamenn mynda sterka heild Rif eftir Önnu Júlíu sigraði og verður á Héðinsreit Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Samtal við þann fyrsta til að taka ljósmyndir á Íslandi Tilnefningar til íslensku myndlistarverðlaunanna Birgitta Björg, Ingunn og Rán Flygenring fengu Fjöruverðlaun Tjörnin trónir á toppnum Borgarstjórar og forsetar á ólgandi listasýningu Hendur sem káfa, snerta og breyta „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Sjá meira