Mikil gagnrýni hefur komið fram á framkvæmdir og byggingu að Álfabakka 2. Í vikunni afhentu íbúar í Árskógum 7 sem stendur við húsið borgarstjóra undirskriftalista tæplega þrjú þúsund þar sem farið var fram á að framkvæmdir yrðu stöðvaðar.
Byggingafulltrúi skerst í leikinn
Aftur urðu vendingar í málinu í dag þegar byggingafulltrúi Reykjavíkur stöðvaði framkvæmdir í þeim hluta hússins þar sem kjötvinnsla á að rísa. Í bréfi byggingafulltrúa segir að komið hafi í ljós misræmi milli samþykktra aðaluppdrátta og skráningartöflu. Gera þurfi betur grein fyrir rýminu fyrir kjötvinnsluna. Ekki liggi fyrir uplýsingar um hvort eigendur byggingarinnar hafi tilkynnt Skipulagsstofnun um fyrirhugaða kjötvinnslu og umhverfisáhrifum hennar. Veittur er sjö daga frestur fyrir skýringar.
Breytir áætlunum Haga
Hagar hafa áform um að taka húsnæðið á leigu undir kjötvinnslu og aðra tengda starfsemi. Finnur Oddsson forstjóri Haga sagði í samtali við fréttastofu að eðli málsins samkvæmt þá breyti þetta áætlunum fyrirtækisins varðandi flutning í húsið. Það komi í ljós með hvaða hætti. Gert sé ráð fyrir að eigendur hússins vinni að úrlausn málsins í samvinnu við skipulagsyfirvöld.
Vonar að þetta sé aðeins fyrsti áfanginn
Formaður Búsetafélagsins Árskógum sjö vonar að framkvæmdir verði alveg stöðvar.
„Þetta er ákveðinn áfangi sem næst með því að stöðva framkvæmdirnar að hluta. Ég geri ráð fyrir að þetta sé aðeins fyrsti áfangi í að stöðvar framkvæmdirnar alfarið. Mér finnst að það eigi að finna þessu húsi annan stað í iðnaðarhverfi,“ segir Kristján.

Hann telur að borgin hefði átt að vita af göllunum og bregðast fyrr við.
„Ég hef heyrt að samskipti milli borgarinnar og eigenda hússins hafi verið á þá leið að borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan. Það er gjörsamlega glórulaust af borgaryfirvöld að planta svona iðnaðarstarfsemi inn í miðja íbúðabyggð, það bara gerist ekki í þeim borgum sem við miðum okkur við,“ segir hann.
Byggingin hafi mikil áhrif
Kristján segir að byggingin hafi mikil áhrif á íbúa.
„Sálfræðileg áhrif af svona byggingu er að fólk verður dapurt, jafnvel einangrast og finnur til þunglyndis. Ég upplifi það hjá sumum íbúum. Fólk er þunglynt út af þessu,“ segir hann.
Hann segir í raun óskiljanlegt að húsið hafi risið með þessum hætti.
„Þegar peningarnir eru annars vegar komast menn upp með ýmislegt,“ segir Kristján að lokum.